Kennarinn.is

Einn fyrir alla…

kennslugögn

now browsing by tag

 
 

Umbunarpassar

Hvað er skemmtilegra en að vinna sér inn umbun fyrir vel unna heimavinnu? Hér eru umbunarpassar sem tilvalið er að prenta út á mismunandi litaðan pappír. Ef þig vantar fleiri gerðir (texta) er um að gera að hafa samband. Smelltu á bláa linkinn fyrir ofan myndina til að nálgast útprentanlegt PDF skjal.

100 taflan

100 taflan í 12 litum til að prenta út og plasta. Smelltu á bláa linkinn fyrir ofan myndirnar til að sækja PDF skjöl í góðri upplausn.

Lestraraugu í lit

Lesaugunum er ætlað að aðstoða við lesturinn. Nemandi rennir auganu undir orðin sem hann les, staðsetur sig þannig á blaðsíðunni og auðveldar yfirferðina.

Smelltu hér til að sækja lesaugun í svarthvítu.

Gátlisti – heimalestur

Smelltu á PDF linkinn hér fyrir ofan til að nálgast prentvænt eintak af gátlistanum.

Gátlisti – skólabyrjun

Smelltu á linkinn hér fyrir ofan til að nálgast gátlistann á PDF formi.

Bréfsefni – Elddrekinn Fernó

Smelltu á linkinn Bréfsefni – Elddrekinn Fernó í dálknum hér fyrir ofan til að nálgast prentvæna PDF útgáfu af skjalinu.

Bókamerki – Elddrekinn Fernó

Smelltu á linkinn Bókamerki – Elddrekinn Fernó í dálknum hér fyrir ofan til að nálgast prentvæna PDF útgáfu af skjalinu.

Óvættaför – undirbúningsgögn

Óvættaför

Fyrsta serían um ævintýrið Óvættaför samanstendur af 6 bókum. Bækurnar heita Elddrekinn Fernó, Sæslangan Sepron, Bergrisinn Arkta, Kentárinn Tagus, Hrímþursinn Nanúk og Eldfuglinn Epos. Aðalpersónan er Tom og fylgst er með baráttu hans við óvætti Avantíu.

Verkefnapakkar

Á sama tíma og Tom tekst á við hverja áskorun á fætur annarri í leiðangri sínum eru verkefnapakkarnir hugsaðir sem námsleiðangur. Með hverri bók fylgja 4 verkefnablöð og samtals eru 24 verkefnablöð í fyrstu seríu. Með efninu fylgir jafnframt forsíða fyrir safnmöppur, auk þess sem bókamerki og bréfsefni fylgja hverjum pakka. Námsmarkmiðin eru tíunduð hjá hverju efni fyrir sig.

Lykilorð og aukastig

Samhliða því að leysa þrautir á verkefnablöðunum sjálfum þurfa nemendur að finna lykilorð en vísbendingar um þau eru neðst á hverju verkefnablaði. Lykilorðin skrá þau á sérstakt lykilorðablað og ef rétt er unnið mynda þau 4 orða setningu. Á sama blað eru aukastig skráð, en tilgangur þeirra er að hvetja nemendur til vandvirkni og samþætta efnið við stærðfræðihugtök auk þess sem kennurum gefst tækifæri til að nýta þau í annars konar umbun á eigin vegum.

Viðurkenningarskjal

Nemendur sem klára verkefnapakka við seríu 1 hafa unnið sér inn Riddaragráðu 1. Viðurkenningarskjalið kemur með lokapakkanum 15. nóvember 2016.

Birting á vef

Efnið er frítt til útprentunar og frjálst að fjölfalda það að vild. Útgáfudagar námsefnispakka eru eftirfarandi:

 

 

 

Eftirminnilegustu ævintýrin

Í æsku upplifði ég sum eftirminnilegustu ævintýri hinna löngu sumarfría á síðum bóka. – Brandon Mull –

Ljósmynd: thejesterscorner.files.wordpress.com