Kennarinn.is

Einn fyrir alla…

Jólastund

now browsing by tag

 
 

24 piparkökukarlar

Það má telja niður til jóla á margvíslegan máta. Hér eru 24 Sætabrauðsdrengir til að lita og hengja upp á vegg í skólastofunni.

10 jólakökur

Litaðu sætabrauðsdrengina og klipptu þá út. Litaðu einnig verkefnablaðið Jólakökur. Teldu punktana á sætabrauðsdrengjunum í kökukrúsinni og leggðu sætabrauðsdrenginn með rétta númerið yfir.

Einnig má prenta út 2 eintök af Sætabrauðsdrengjunum með tölustöfunum, plasta og nota sem minnisspil.

Sætabrauðssagan

 

Jólapakkaskiptileikur

Jólapakkaskiptileikinn er hægt að nota með nemendum á litlu jólunum, eða á jólahlaðborði í vinnunni. Klippa þarf miðana út og setja í skál. Pökkunum er dreift handahófskennt á borðin og þátttakendur draga miða. Síðan hefst skiptileikurinn. Vel getur farið svo að sami þátttakandi skipti oftar en einu sinni um pakka við einhvern. Smelltu á bláa linkinn fyrir ofan skjalið til að sækja það á PDF formi. Góða skemmtun :-).

Jólakortalistinn

Margir eru farnir að senda jólakveðjur í gegnum samfélagsmiðla en að föndra jólakort og skrifa fallegar kveðjur í þau er bekkjarvænt jólaverkefni. En hvaða ferli felst í því að senda kort almennt? Hér er skemmtilegur gátlisti til skoðunar og renningar til að skrá nöfn og heimilisföng viðtakenda. Tilvalið er að klippa renningana út og hefta saman að ofanverðu í litla bók.

Á listanum er minnst á að kaupa frímerki sem vissulega er nauðsynlegt ef sent er á milli sveitarfélaga eða landa. Þá gefst gott tækifæri til að skoða þessa litlu snepla ögn betur og jafnvel nýta verkefnið í stærðfræði líka. Hvað fá margir jólakort með pósti? Hvað kostar að senda þau? Hvað gætu nemendur borið mörg kort út sjálfir og sparað sér pening? Hvað kostar að senda kort innanlands vs. erlendis? Skiptir þyngd á póstsendingum máli?

Tengt efni

Aðventukransinn

Fjórði sunnudagur í aðventu

Smelltu á linkinn hér fyrir ofan til að sækja PDF eintak í prentupplausn.

Þriðji sunnudagur í aðventu

Smelltu á linkinn hér fyrir ofan til að sækja PDF eintak í prentupplausn.

Annar sunnudagur í aðventu

Smelltu á linkinn hér fyrir ofan til að sækja PDF eintak í prentupplausn.

Fyrsti sunnudagur í aðventu

Smelltu á linkinn hér fyrir ofan til að sækja PDF eintak í prentupplausn.