Kennarinn.is

Einn fyrir alla…

september

now browsing by tag

 
 

Afmælisveggur

Efnið samanstendur af 12 skjölum með mánaðarheitunum. Nöfn nemenda eru skráð á réttan mánuð, og skjölin plöstuð og hengd upp í skólastofunni. Hægt er að setja texta í PDF skjalið með verkfærinu PDFescape áður en prentað er. Með pakkanum fylgir einnig stakt A4 blað með öllum mánuðunum sem gott er að stinga inn í skipulagsbókina. Myndirnar eru fengnar af síðunni silhouettesfree.com

afmaeilisveggur2afmaeilisveggur3afmaeilisveggur4afmaeilisveggur5afmaeilisveggur6afmaeilisveggur7afmaeilisveggur8afmaeilisveggur9afmaeilisveggur10afmaeilisveggur11afmaeilisveggur12afmaeilisveggur13afmaeilisveggur14afmaeilisveggur15

Septembermiðar fyrir forsíðu

Með Almanaksbókinni fylgir forsíða fyrir verkefnapakkana og hægt að velja um fjóra liti: gula, vínrauða, ljósgræna og ljósblá. Jafnframt fylgir svarthvítt eintak í pakkanum. Forsíðu má sækja HÉR.

Á forsíðu Almanaksbókarinnar eru reitir, einn fyrir hvern mánuð. Í hvert sinn sem nemandi lýkur við mánaðarpakka fær hann miða til að klippa út og líma yfir viðkomandi reit á forsíðunni. Á hverri örk eru 28 miðar, þá er hægt að nota á margvíslegan annan máta:

  • Útbúa samstæðuspil með öllum mánuðunum
  • Nemendur draga sig saman í hópa
  • Veiðimann
  • Umbun

limmidar_sept

Septemberflögg í svarthvítu

Til að sækja flöggin á PDF skjali þarf að velja bláa linkinn hér fyrir ofan. Klipptu þríhyrningslaga flöggin út og brjóttu eftir línunni. Settu band inn í brotið, föndurlím á milli og límdu niður.

Septemberflögg í lit

Til að sækja flöggin á PDF skjali þarf að velja bláa linkinn hér fyrir ofan. Klipptu þríhyrningslaga flöggin út og brjóttu eftir línunni. Settu band inn í brotið, föndurlím á milli og límdu niður.

Almanaksbókin – Septemberpakkinn

September er níundi mánuður ársins en í latnesku tímatali byrjaði árið í mars og þá var september sá sjöundi í röðinni. Septem þýðir sjö svo þaðan er nafnið komið. September er einn af fjórum mánuðum sem hafa 30 daga og markar upphaf hins akadamíska dagatals í mörgum löndum. Helstu merkisdagar septembermánaðar eru 5. september, alþjóðlegur dagur góðgerðarmála, 8. september, alþjóðadagur læsis, 15. september, alþjóðadagur lýðræðis og 16. september sem er dagur íslenskrar náttúru. Á vef Menntamálastofu má finna góð námsgögn um dag íslenskrar náttúru.

Verkefnablöðin í septemberpakka Almanaksbókarinnar eru fjögur. Veldu skjalið Almanaksbókin – September PDF til að prenta efnið út í góðri prentupplausn.

1) Nemendur fylla inn í dagatalið, svara spurningum og skreyta það og lita eftir fyrirmælum.

2) Fylgst er með hitastigi septembermánaðar og það skráð inn í mælinn. Nemendur skrá verðurlýsingu fyrir mánuðinn.

3) Merkisdagar septembermánaðar eru skoðaðir og gott tækifæri til að ræða þá og vinna meira með nemendum. Nemendur þurfa að leita að upplýsingum um holtasóley, þjóðarblómið, og skrá niður. Á síðunni er framhald á afmælisdagarenningunum þar sem nemendur geta skráð afmælisdaga vina og ættinga. Tilvalið er að safna mánaðarrenningunum saman, klippa út og hefta í litla bók.

4) Árgangarannsókn á afmælisdögum. Nemendur ganga á milli og spyrja nemendur í sama árgangi um afmælisdagaþeirra. Hægt er að gera skammstafanir nafnanna í reitina, afmælisdagana sjálfa, lita eða krossa. Að lokum taka nemendur tölfræðina saman og skrá þá mánuði sem hafa fæst og flest afmælisbörn, auk þess að skrá niður afmælismánuð kennarans.

Letur heitir Agent Orange og er sótt á síðuna Dafont.com.

Screen Shot 2017-04-11 at 05.37.55