Kennarinn.is

Einn fyrir alla…

Markmið

Skólagangan á að vera líflegt og litskrúðugt æviskeið, með fjölbreyttum tækifærum og góðum stundum. Kennarinn þarf að ganga í takt við samtíma sinn, fagna fjölbreytileika og fanga hug og hjörtu skjólstæðinga sinna. Kennarinn þarf að mennta og menntast, fræða og fræðast, gleðja og gleðjast.

Kennaranum þarf ekki að líka vel við alla frekar en að öllum þurfi að líka vel við kennarann. Kennarinn má pirrast, svekkjast og jafnvel reiðast. Og það má líka reiðast kennaranum og benda á veikleika hans. Veikleikar eru sóknarfæri kennarans, jafnt sem annarra, til að styrkjast í leik og starfi.

Kennarinn þarf svigrúm til að taka ákvarðanir og vinnufrið til að stýra námshópum útfrá hagsmunum heildarinnar. Kennarans er að vernda og hlú að menningarauði, varast jaðarsetningar minnihlutahópa og finna námsneistann í brjósti ólíkra einstaklinga.

Tilgangur vefsins Kennarinn.is er að:

- halda til haga upplýsingum sem snertir menntun á Íslandi, frá fyrstu skrefum barns hjá dagforeldrum til útskriftar á háskólastigi. Vefurinn er hugsaður fagaðilum, forsjáraðilum og nemendunum sjálfum til handagagns.

- vera gagnabanki fyrir fagfólk í uppeldisfræðum, safn með ítarefni, skipulagsgögnum og ábendingum um gott efni á vef og þriðja aðila.

- vera vettvangur þar sem kennarar geta deilt eigin námsefni með kollegum og fengið aðstoð við að gera efnið frambærilegt til útprentunar.

- vera vettvangur fyrir gögn sem gefin eru út á vegum fyrirtækisins Kennarinn útgáfa.

- vera sá vettvangur sem fyrstur kemur í hugann þegar upp koma vangaveltur um menntamál á Íslandi og málaflokka þeim tengdum.