Kennarinn.is

Einn fyrir alla…

Ritlist

now browsing by tag

 
 

Tímasetning atburða

Ertu að skrifa sögu? Hver er ytri tíminn? En innri tíminn? Er flakkað í tíma? Er eitthvað í sögunni sem gefur lesanda vísbendingar um hvenær hún gerist (klæðnaður, tækni, byggingar, atburðir, frægt fólk,.…)?  Hér er listi með 20 mismunandi leiðum til að tímasetja atburði í sögum. Góða skemmtun!

Sjá einnig

Tetrisleidbeiningar

Fyrir einhvern er örugglega auðveldara að spila Tetris en að útskýra leikinn á rituðu formi. Hér er því góð áskorun fyrir tölvuleikjagengið :-). Nemendur afla sér upplýsinga um Tetrisleikinn, prófa að spila hann og útbúa svo leiðbeiningar með það að markmiði að nýta sem flest hugtök í meðfylgjandi orðalista.

 

Samþætting við stærðfræði: Allir spila einn Tetrisleik og skor er skráð upp á töflu. Nemendur vinna með gagnasafnið, skoða hæsta gildi, lægsta gildi, miðgildi og meðaltal auk þess að setja upplýsingarnar fram á myndrænu formi.

 

Tenglar

Að byrja sögur

Ætlið þið að skrifa smásögur í vetur? Hér er listi með 20 leiðum til að hefja meistaraverkið. Ekki væri leiðinlegt að fá að sjá afrakstur nemenda á einhverju formi! 🙂 Smelltu á bláa linkinn fyrir ofan myndina til að sækja eintak á PDF formi. Sjá einnig listann Að tímasetja atburði. Góða skemmtun!

Septemberritun

Septemberritunin tengist dýrum í orðatiltækjum og málsháttum. Í mörgum tilvikum er um afbökun að ræða sem gefur áhugasömum kennurum tækifæri til að ræða eiginlega þýðingu þeirra. Ritunarverkefnin má nýta sem stakar hugmyndir eða leggja blaðið fyrir í heild sinni og vinna með allan mánuðinn. Í pakkanum eru einnig 24 mismunandi bréfsefni, eitt fyrir hvert viðfangsefni auk þess sem auð síða er aftast í skjalinu til að fjölfalda fyrir þá sem þurfa fleiri blaðsíður til að skrifa á. Einnig má vinna verkefnin beint í stílabók.

Gaman væri að fá sýnishorn frá nemendum í lok septembermánaðar eða myndir af vinnunni :-).

Orðatiltæki:

  • að vera harður í horn að taka
  • að renna blint í sjóinn
  • að kasta perlum fyrir svín
  • að vera maður eða mús
  • að vera köttur í bóli bjarnar
  • þar liggur fiskurinn undir steininum
  • fíllinn í stofunni
  • að vera varaskeifa einhvers
  • að liggja eins og ormur á gulli
  • að vera kanarífuglinn í kolanámunni
  • eggið sem kennir hænunni
  • að gera úlfalda úr mýflugu
  • hér er maðkur í mysunni
  • að vera úlfur í sauðagæru
  • að sjá við agninu
  • að standa á öndinni
  • að vera með skottið á milli fótanna
  • eitthvað sem kemur upp úr kafinu
  • að vera fluga á vegg einhvers staðar
  • að skreyta sig með stolnum fjöðrum
  • að birtast eins og skrattinn úr sauðaleggnum
  • að vera hvorki fugl né fiskur
  • að hlaupa af sér hornin
  • að vera gullkálfur einhvers

Myndaskrá: