Málfræði
now browsing by tag
13 þjóðsögur
almanaksbókin
Byrjendalæsi
bók
Bókamerki
dagatal
Disney bækurnar
Edda
Edda útgáfa
Eyðufyllingar
Flakkarinn
Hlusta.is
Iðnú
Jóladagatal Kennarans
Jólastund
kennarinn
kennarinn.is
kennsla
Leirmottur
lesa
Lesskilningshefti
lesskilningsverkefni
Lesskilningsverkefni Disney
lesskilningur
lestrarhefti
lestrarátak
lestur
Listin að lesa
merkisdagar
Minjasafn Austurlands
Mánudagsgleðin
orðaforði
orðakubbur
orðasúpa
Orðasúpur
Ritlist
ritun
skriftarrenningar
stafrófið
stærðfræði
Vinnubókastrimlar
Óvættaför
Þjóðsögur
þrautahefti
þrautir
Lagarfljótsormurinn
Hver verkefnapakki inniheldur 4 verkefnablöð. Í þjóðsögunni um Lagarfljótsorminn er að finna orðasúpu, hlustunarverkefni, stafrófsverkefni og málfræðiverkefni þar sem lögð er áhersla á nafnorð (kyn, fallbeygingu, et/ft og greini). Smelltu á bláa linkinn hér fyrir ofan til að sækja PDF eintak af efninu.
Námsefnið er unnið í samstarfi við Mitt Ísland sem gefur þjóðsöguspilin út og færir kennurum nú þessa gjöf. Í desember 2017 kom út 32 blaðsína þrauta- og verkefnabók þar sem áherslan er að læra í gegnum afþreyingu. Í námsefninu á síðu Kennarans hefur meiri málfræði verið bætt við hvern pakka sem tengist námsmarkmiðum miðstigs í íslensku.
Hægt er að panta þjóðsöguspilin og þrauta- og verkefnabókina með þjóðsögunum hér.
Sagnorð – dýrahljóðin
Nemendur lyfta flipunum og skrifa sagnorð sem lýsa hljóðum dýranna. Hægt er að skrifa eingöngu sagnorðin sjálf eða nota tækifærið fyrir þá sem eru lengra komnir og skrifa heilar setningar. Smelltu á bláa linkinn hér fyrir ofan til að sækja PDF eintak af verkefninu.
Lausn: svínið hrín, kýrin baular, haninn galar, björninn rymur, mávurinn gargar, krumminn krunkar, hundurinn geltir, þrösturinn syngur, kisan mjálmar, músin tístir, kindin jarmar, fíllinn öskrar, býflugan suðar, froskurinn kvakar, dúfan kurrar, asninn hrín, selurinn gólar, úlfurinn spangólar, álftin kvakar og ljónið öskrar.
Aukaverkefni 1: Strika undir greininn í nafnorðunum með svörtum trélit.
Aukaverkefni 2: Lita reiti með karlkynsnafnorðum græna, reiti með kvenkynsnafnorðum appelsínugula og reiti með hvorugkynsnafnorðum gula.
Aukaverkefni 3: Gefa dýrunum nafn og skrá sérnöfnin á innanverða flipana.
Sagnorð – nafnháttur
Nemendur lyfta flipunum og skrifa sagnorð í nafnhætti sem tengjast starfi viðkomandi stétta. Dæmi: Hvað er kokkur að gera? – Að elda. Hægt er að skrifa eingöngu sagnorðin sjálf ásamt nafnháttarmerkinu, eða nota tækifærið fyrir þá sem eru lengra komnir og skrifa heilar setningar. Smelltu á bláa linkinn hér fyrir ofan til að sækja PDF eintak af verkefninu.
Nafnorð – kyn
Nemendur lyfta flipunum og skrifa niður nafnorð í því kyni sem stendur á þeim. Hér er gott tækifæri til að leggja inn muninn á sérnöfnum og samnöfnum. Eru til sérnöfn í hvorugkyni? Smelltu á bláa linkinn hér fyrir ofan til að sækja PDF eintak af verkefninu.
Sérnöfn – dýranöfn
Nemendur fletta flipunum upp og skrifa niður þau nöfn sem þeir þekkja og/eða finnst passa á viðkomandi dýrategund. Þannig má sem dæmi hugsa sér nafnið Sámur á hund og Dimma á tík. Tilvalið er að skoða meðal annars vefinn um íslensku húsdýrin við lausn verkefnisins. Smelltu á bláa linkinn hér fyrir ofan til að sækja PDF eintak af verkefninu.
Aukaverkefni: Hvaða heita afkvæmi dýrategundanna?