Kennarinn.is

Einn fyrir alla…

lestrarhefti

now browsing by tag

Febrúarlestur – Í lit PDF

Febrúar er á margan hátt skemmtilegur mánuður og mikið um að vera. Daginn fer að lengja en þó enn kósí að leggjast undir teppi með góða bók í rökkrinu. Það er gaman að geta þess að fyrsti laugardagur í febrúar ár hvert er hinn alþjóðlegi „farðu með barnið þitt á bókasafnið“ dagurinn. Lestrarheftið tengist því svolítið en þar má finna skemmtilegt verkefni um bókaflokka auk þess sem heftið inniheldur sögutening, 100 algeng orð, sögupersónarýni og verkefni um samsett orð. Það er SAFT sem styrkir útgáfuna að þessu sinni, en SAFT er vakningarátak um örugga og jákvæða tölvu- og nýmiðlanotkun barna og unglinga á Íslandi. Á heimasíðu þeirra má finna margvísleg heilræði og leiðbeiningar til foreldra og skólastarfsmanna.

Janúarlestur – í svarthvítu

Það er ekki leiðinlegt að hefja nýtt ár með hressilegu lestrarátaki og í janúarheftinu gefur að líta nýja áskorun þar sem nemendur eru meðal annars hvattir til að lesa smásagnasafn, uppáhalds barnabók foreldris og sögu sem gerist í framtíðinni. Auk þess má finna orðflokkapúsl, söguramma, fleirtölusúpu og verkefni tengt persónulýsingum. Janúarheftið er í boði Myndmáls, en fyrirtækið gefur út myndrænt orðasafn fyrir leikskóla- og grunnskólabörn til að læra íslensku með myndum, hljóði og texta. Myndmál nýtist einnig vel sem kennsluumhverfi fyrir fólk af erlendum uppruna, börn með þroskahamlanir og einstaklinga með einhverfu. Í boði er frír prufuaðgangur að 4 flokkum en orðasafnið í heild inniheldur yfir 1300 mismunandi myndir og hljóð.

Janúarlestur – í lit

Desemberlestur í svarthvítu

Í desemberlestrarheftinu er meðal annars unnið með lestrartölfræði þar sem nemendur færa inn mismunandi tegundir lesturs (tímarita, dagblaða, teiknimynda o.fl). Skemmtilegt jóladagatal er í boði hljóðbókasíðunnar Hlusta.is en hægt verður að hlusta á 24 fallegar jólasögur á aðventunni auk þess sem nemendur spreyta sig á sögukorti. Heftið kemur út í lok nóvember og það er Jógasetrið sem styrkir að þessu sinni. Jógasetrið er virkilega notalegur staður sem býður upp á vönduð námskeið fyrir fólk á öllum aldri. Þar er hægt að fara í sérstakt Krakkajóga auk þess sem fyrirtækið hefur gefið út jóga á DVD fyrir börn, sjá kynningu.

Desemberlestur – í lit