Kennarinn.is

Einn fyrir alla…

tölfræði

now browsing by tag

 
 

Tetristölfræði

Hér er verkefni fyrir þá sem hafa gaman af því að klippa, lita og líma samhliða stærðfræðinni. Nemendur lita Tetrisformin í litum að eigin vali áður en þeir klippa teninginn út og líma saman. Svo er kastað og skráð hvaða form kemur upp. Það form sem fyrst kemur 10 sinnum upp vinnur. Samhliða tölfræðinni er hægt að vinna með fleiri stærðfræðihugtök, dæmi:

  • Hversu oft þurfti að kasta til að klára verkefnið? (Skráð með talnastrikum).
  • Hve langan tíma tók verkefnið? (Tímataka með skeiðklukku).
  • Hvaða form kom sjaldnast upp? (Hæsta gildi og lægsta gildi).  

EM 2016 – Spádómsteningur

Prentaðu spádómsteninginn og tölfræðiblaðið út. Klipptu teninginn út og límdu eins og sýnt er á myndinni. Kastaðu teningnum 100 sinnum og skráðu hvort kemur oftar upp Ísland eða England. Skráðu niðurstöðurnar sem prósentur. Hverju spáir teningurinn?

Fánar: https://www.iconfinder.com/

spadomsteningur2 spadomsteningur