Kennarinn.is

Einn fyrir alla…

Ramí

now browsing by tag

 
 

Ramí, Tímó og Tara – Skriftarrenningar

Skriftarrenningarnir fylgja eyðufyllingarverkefnunum en þá eru þeir klipptir niður. Nemendur draga renning og skrifa inn þá stafi sem vantar. Skriftarrenningarnir eru hugsaðir sem fjölnota kennslugagn til útprentunar og plöstunar. Þá má nota á margvíslegan máta, sjá kennsluhugmyndir hér.

 

 

Ramí, Tímó og Tara – eyðufyllingar

Í eyðufyllingarverkefnunum er búið að taka nokkra stafi úr orðalistum skriftarrenningana. Nemendur þurfa að draga skriftarrenning (1-5) og skrifa rétta stafi inn í orðin.

 

 

 

 

Ramí, Tímó og Tara – Orðasúpa

Orðasúpan er með hefðbundnum hætti, nemendur finna orð sem eru falin ýmist afturábak eða áfram, upp eða niður, og á ská. Tilvalið er að plasta orðasúpurnar og vinna þær með töflutúss. Smelltu á bláa linkinn hér fyrir ofan til að sækja PDF eintak af orðasúpunni.