Kennarinn.is

Einn fyrir alla…

Námsspil

now browsing by tag

 
 

Uglumylla svarthvít

Prentaðu skjalið út og plastaðu. Klipptu uglurnar út. Í svarthvítu útgáfunni geta leikmenn litað uglurnar að vild áður en klippt er. Leikreglur:  Leikmenn leggja uglur sínar víðsvegar um borðið og reyna að mynda þrennu lóðrétt, lárétt eða á ská. Ef tekst að mynda þrennu má fjarlægja einn af spilapeningum andstæðingsins af borðinu, þó ekki ef sá spilapeningur er einnig í þrennu. Þegar búið er að leggja allar uglur niður spila leikmenn með því að færa þær um reitina. Ekki má hoppa á milli lína nema þegar leikmaður á einungis 3 uglur eftir. Sá tapar sem fyrstur stendur uppi með einungis 2 uglur. Einnig er hægt að nálgast Uglumylluna í lit.

Uglumylla

Prentaðu skjalið út og plastaðu. Klipptu uglurnar út. Í svarthvítu útgáfunni geta leikmenn litað uglurnar að vild áður en klippt er. Leikreglur:  Leikmenn leggja uglur sínar víðsvegar um borðið og reyna að mynda þrennu lóðrétt, lárétt eða á ská. Ef tekst að mynda þrennu má fjarlægja einn af spilapeningum andstæðingsins af borðinu, þó ekki ef sá spilapeningur er einnig í þrennu. Þegar búið er að leggja allar uglur niður spila leikmenn með því að færa þær um reitina. Ekki má hoppa á milli lína nema þegar leikmaður á einungis 3 uglur eftir. Sá tapar sem fyrstur stendur uppi með einungis 2 uglur. Einnig er hægt að nálgast Uglumylluna í svarthvítri útgáfu.

Gefa Taka Fisk

Gefa og taka er vel þekkt borðspil í kennsluaðferðinni Byrjendalæsi. Spilið samanstendur af miðum sem þarf að lesa af og reituðum spjöldum. Nemendur draga miða og mega ýmist halda honum eða þurfa að láta af hendi. Læra þarf bæði að gefa og þiggja, og stundum er hið fyrrnefnda síður en svo auðvelt.