Hreindýr
now browsing by tag
Safnarallý hreindýr
Skjalið er hluti af námsefninu Hreindýr sem unnið er í samvinnu við Minjasafn Austurlands. Það tengist verkefninu Safnarallý og myndirnar sýna muni úr hreindýrasýningu safnsins. Þeir sem ekki komast með nemendur að sjá sýninguna geta nýtt myndirnar að vild í skólastofunni.
Ljósmyndir af mununum eru teknar af Elsu Guðnýju Björgvinsdóttur:
- H01 Loðin krúna
- H02 Staðsetningartæki fyrir hreindýr
- H03 Byssa
- H04 Göngustafur úr hreindýrshorni
- H05 Hreindýrshorn flækt í vír
- H06 Fótur af hreindýri
- H07 Eyrnamerki fyrir hreindýrskálfa
- H08 Klyfberi
- H09 Verkfæri úr hreindýrshorni
- H10 Hreindýrshorn sem hefur dottið af hreindýri (efst: brennimerki, miðja: hófjárn, neðst: heynál).
Smelltu á bláa PDF linkinn hér fyrir ofan til að sækja skjalið í fullri prentupplausn.
Kennsluleiðbeiningar – hreindýr
Útbreiðsla hreindýra
Á verkefnablaðinu má sjá mynd af Austurlandi. Útbreiðslumörk hreindýra markast norður af Austurlandi frá Jökulsá á Fjöllum, norður fyrir Dettifoss og yfir í Þistilfjörð. Suður af Austurlandi liggja mörkin að Breiðamerkurlóni. Nánari upplýsingar um útbreiðslu hreindýra má finna í vöktunarskýrslum Náttúrustofu Austurlands, sjá mynd 1.
Aukaverkefni:
- Teikna útbreiðslumörkin inn á Íslandskortið.
Hreindýrakönnun
Nemendur gera könnun meðal bekkjarfélaga hversu margir hafa séð eða komist í návígi við villt hreindýr í umhverfi sínu. Nemendur geta velt því fyrir sér hvort hreindýr í húsdýragarði falli undir skilgreininguna villt hreindýr.
Fyrstu hreindýrin
Hreindýr hafa verið flutt fjórum sinnum frá Noregi til Íslands. Nemendur finna staðina á landakorti og skrá inn á Íslandskortið.
Umræðupunktar:
- Hvað er langt síðan fyrstu dýrin komu til Íslands?
- Af hverju ætli Vestmannaeyjar hafi orðið fyrir valinu?
Fæða hreindýra 1
Nemendur finna orðin sem falin eru ýmist áfram, aftur á bak, upp, niður eða á ská í orðasúpunni.
Umræðupunktar:
- Hvað af jurtaheitunum eru samsett orð?
- Af hverju eru jurtaheiti skrifuð með litlum staf?
- Hvaða jurtir eða gróður eru líka mannanöfn?
Fæða hreindýra 2
Nemendur prenta út myndir, klippa niður og líma í reitina eða teikna myndir í þá. Vefurinn Flóra Íslands hefur að geyma mjög góðar upplýsingar. Einnig má hugsa sér að tína jurtirnar, þurrka og líma í reitina.
Hugtakakortið
Aftast í verkefnaheftinu er fylgiskjalið Klippt og límt. Nemendur klippa miðana út og líma í reitina eftir því sem við á. Með flokkun er átt við hvernig hreindýr flokkast innan dýraríkisins.
Aukaverkefni:
- Útbúa orðskýringar í stílabók.
- Skrá orðin í stafrófsröð í stílabók.
- Raða hverjum flokki fyrir sig í stafrófsröð áður en miðar eru límdir á verkefnablaðið.
- Draga miða og útskýra hugtakið fyrir bekknum.
Hreindýrahornin
Nemendur setja orðin á réttan stað í eyðurnar. Ljósmyndir í heftinu eru teknar af Skarphéðni G. Þórissyni sérfræðingi hjá Náttúrustofu Austurlands. Á síðunni hans, hreindyr.com, er að finna mikið magn af fallegum árstíðatengdum myndum af villtum hreindýrum á Íslandi.
Hreindýrasagan
Hvað er að gerast á myndinni? Nemendur búa til frétt eða smásögu og skrifa á línurnar.
Aukaverkefni:
- Lesa söguna upp fyrir samnemendur.
- Hvaða fleiri hættum í umhverfinu getur hreindýrum staðið ógn af?
Hreindýraveiðar
Veiðar hafa verið stundaðar á hreindýrum um árabil og nánari upplýsingar um hreindýraleyfi, veiðikort, lög og reglur, uppskriftir og veiðiupplýsingar má finna á vef Umhverfisstofnunar.
Safnarallý
Á Minjasafni Austurlands er sýningin Hreindýrin á Austurlandi. Hægt er að nálgast PDF skjal hér með númeruðum munum fyrir safnarallýið:
- H01 Loðin krúna
- H02 Staðsetningartæki fyrir hreindýr
- H03 Byssa
- H04 Göngustafur úr hreindýrshorni
- H05 Hreindýrshorn flækt í vír
- H06 Fótur af hreindýri
- H07 Eyrnamerki fyrir hreindýrskálfa
- H08 Klyfberi
- H09 Verkfæri úr hreindýrshorni
- H10 Hreindýrshorn sem hefur dottið af hreindýri (efst: brennimerki, miðja: hófjárn, neðst: heynál).
Hreindýraprófið
Könnun fyrir nemendur í lok yfirferðar.
Umræðupunktar:
- Hvað fannst þér áhugaverðast?
- Hvað myndir þú vilja vita meira um hreindýr?
- Þekkir þú einhver fræg hreindýr? Hver?
- Hefur þú smakkað hreindýrakjöt?
- Áttu hlut úr beini, horni eða skinni hreindýra?
Hægt er að sækja útprentanlegt PDF form af kennsluleiðbeiningum með því að smella á bláa linkinn efst á síðunni. Í VINNSLU
Hreindýr
Um námsefnið
Efnið er unnið af Unni Maríu Sólmundsdóttur í samvinnu við Elsu Guðnýju Björgvinsdóttur fyrir Minjasafn Austurlands. Það er hugsað sem stuðningur við safnafræðslu og skólaheimsóknir, og opið öllum sem vilja nýta það í vinnu með börnum. Smelltu á bláa linkinn hér fyrir ofan til að sækja PDF útgáfu í fullri prentupplausn (Hreindýr – PDF).
Ljósmyndir
Skarphéðinn G. Þórisson.
Teikningar
Sjá heimildaskrá.
Yfirlestur
Elsa Guðný Björgvinsdóttir, Skarphéðinn G. Þórisson og Elín Sigríður Arnórsdóttir.
Kennsluleiðbeiningar
Kennsluleiðbeiningar með efninu má sækja hér.
Veggspjöld fyrir verkefnið Safnarallý:
Námsefnispakkinn er settur upp með safnaheimsókn í huga. Þeir sem ekki hafa tök á að sækja Minjasafn Austurlands heim og fræðast þar um hreindýrin geta sótt ljósmyndir af mununum hér og hengt upp í skólastofunni. Ljósmyndirnar eru teknar af Elsu Guðnýju Björgvinsdóttur.
Heimildaskrá
Í vinnslu