Hlusta.is
now browsing by tag
4. desember – Jóladraumur
Jóladraumur
Það þarf vart að kynna sögu Charles Dickens um fúllynda nískupúkann Ebenezer Scrooge sem heimsóttur var af öndum þess liðna. Karlgreyið fékk að kenna á því en batnandi mönnum er best að lifa. Sagan er nokkuð löng og á vef Hlusta.is má nálgast hana í 7 hljóðfælum sem eru á bilinu 10-20 mínútna langir. Enda þótt efnið sé sett fram sem fjórða sagan í jóladagatalinu er kjörið að deila henni á nokkra nestistíma á aðventunni samhliða styttri sögum.
Smelltu hér til að hlusta á söguna.
Í meðfylgjandi PDF skjali eru fjögur verkefni: Spurningagerð þar sem nemendur útbúa sjálfir spurningar upp úr efninu, stafsetningarverkefni, ritun og hugtakakort. Hægt er að vinna meira með spurningarnar sem safnast í fyrsta verkefninu og sem dæmi að láta nemendur víxla blöðum og svara spurningum hvers annars í stílabók. Verkefnin er hægt að sjá hér fyrir neðan en til að nálgast PDF eintak í réttri prentupplausn þarf að velja skjalið 4. desember – Jóladraumur PDF.
Myndaskrá:
Jóakim Aðalönd: http://img11.deviantart.net
3. desember – Góður vilji
3. desember
Svo mikið er víst að jólagleðin fæst ekki fyrir peninga. Sagan fjallar um unga fatlaða saumastúlku sem vill gleðja alla í kringum sig en hefur ekki bolmagn til að kaupa jólagjafir. Hún býr í sama húsi og barnmörg ekkja en þrátt fyrir auraleysi nær hún að gefa henni hina fullkomnu jólagjöf.
Smelltu hér til að hlusta á söguna.
Í meðfylgjandi PDF skjali eru fjögur verkefni: Beinar efnisspurningar, hlustunargátlisti, völundarhús og ritunarverkefni. Orðin í hlustunargátlistanum koma fyrir í réttri röð en mislangt á milli þeirra. Fyrst koma orðin í fremsta dálkinum, þá miðdálkinum og loks þeim síðasta líkt og örvarnar sýna. Verkefnin er hægt að sjá hér fyrir neðan en til að nálgast PDF eintak í réttri prentupplausn þarf að velja skjalið 3. desember – Góður vilji PDF.
Myndaskrá:
- Skuggamynd af börnum sem leiðast: www.clker.com
- Skuggamynd af jólakerti: s-media-cache-ak0.pinimg.com
2. desember – Bryddir skór
2. desember
Bryddir skór fjallar um ungan farkennara sem staddur er á bæ að mennta syni húsbóndans. Allir hrífast af þessum unga manni og meðal annars efnuð eldri piparmey og kornung vinnukona. Sagan er heldur í þyngri kantinum hvaða orðaforða varðar en gefur að sama skapi mörg tækifæri til að ræða hvað tungumálið hefur breyst og útvikka skilning nemenda alveg niður í 1. bekk. Verkefnin eru í takt við það en yngstu bekkirnir geta þó teiknað mynd af baðhúsinu, rætt um orðin og orðatiltækin, og notað orð af eigin vali í binógið.
Smelltu hér til að hlusta á söguna.
Í meðfylgjandi PDF skjali eru fjögur verkefni: Beinar spurningar með orðum og orðatiltækjum, óútfyllt orðasúpa, óútfyllt bingó og Skriftarrenningar til að nota í orðasúpu og bingó. Verkefnin er hægt að sjá hér fyrir neðan en til að nálgast PDF eintak í réttri prentupplausn þarf að velja skjalið 2. desember – Bryddir skór PDF.
1. desember – Babúska
1. desember
Babúska er fyrsta ævintýrið í jóladagatali Kennarans og vefsins Hlusta.is. Babúska fjallar um gamla konu sem gefur sér ekki tíma til að fara með þremur gömlum mönnum að heilsa upp á nýfætt Jesúbarnið. Hún sér þó eftir því og fer á eftir þeim en hvernig sem hún leitar finnur hún ekki barnið. Hún finnur þó mörg börn í leit sinni og gerir það að vana sínum að skilja gjöf eftir hjá þeim.
Smelltu hér til að hlusta á söguna.
Í meðfylgjandi PDF skjali eru fjögur verkefni: Beinar spurningar, völundarhús, orðasúpa og babúska til að lita. Verkefnin er hægt að sjá hér fyrir neðan en til að nálgast PDF eintak í réttri prentupplausn þarf að velja skjalið 1. desember – Babúska PDF.
Myndaskrá:
- Jesúbarnið: www.publicdomainpictures.net
- Lítil babúska: sweetclipart.com
- Babúska til að lita: s-media-cache-ak0.pinimg.com