H.C. Andersen
now browsing by tag
5. desember – Litla stúlkan með eldspýturnar
Litla stúlkan með eldspýturnar
Sagan um litlu stúlkuna með eldspýturnar eftir H.C. Andersen fjallar um sorgleg örlög fátækrar stúlku sem verður úti á gamlárskvöldi. Köld og svöng kúrir hún í húshorni og þorir ekki heim þar sem hún hefur ekki náð að selja eldspýturnar. Hún kveikir á einni og einni til að ylja sér uns amma hennar birtist skyndilega. Sagan á erindi við alla aldurshópa og þar sem 5. desember 2015 ber upp á laugardag er tilvalið að senda verkefnablöð heim í töskupósti og hvetja heimilin til samstarfs.
Smelltu hér til að hlusta á söguna.
Í meðfylgjandi PDF skjali eru fjögur verkefni: Efnisspurningar, orðasúpa, sögukort og krossorðaglíma. Verkefnin er hægt að sjá hér fyrir neðan en til að nálgast PDF eintak í hæfilegri prentupplausn þarf að velja skjalið 5. desember – Litla stúlkan með eldspýturnar PDF.
Myndaskrá:
Litla stúlkan með eldspýturnar: http://orig09.deviantart.net