Charles Dickens
now browsing by tag
13. desember – Jólaklukkurnar
Jólaklukkurnar
Jólaklukkurnar eru ein af jólasögum Charles Dickens. Sagan er nokkuð löng og hentar því betur í vinnu með eldri nemendum. Verkefnavalið tekur mið af því. Á Skriftarrenningana skrá nemendur 13 nafnorð, 13 sagnorð og 13 lýsingarorð á meðan hlustað er. Renningarnir eru svo notaðir í setningaverkefnið.
Smelltu hér til að hlusta á söguna.
Í meðfylgjandi PDF skjali eru fjögur verkefni: Sögudómur, orðakubbur, Skriftarrenningar og setningagerð. Verkefnin er hægt að sjá hér fyrir neðan en til að nálgast PDF eintak í hæfilegri prentupplausn þarf að velja skjalið 13. desember – Jólaklukkurnar PDF.
Myndaskrá:
Jólaklukkur: wpclipart.com
4. desember – Jóladraumur
Jóladraumur
Það þarf vart að kynna sögu Charles Dickens um fúllynda nískupúkann Ebenezer Scrooge sem heimsóttur var af öndum þess liðna. Karlgreyið fékk að kenna á því en batnandi mönnum er best að lifa. Sagan er nokkuð löng og á vef Hlusta.is má nálgast hana í 7 hljóðfælum sem eru á bilinu 10-20 mínútna langir. Enda þótt efnið sé sett fram sem fjórða sagan í jóladagatalinu er kjörið að deila henni á nokkra nestistíma á aðventunni samhliða styttri sögum.
Smelltu hér til að hlusta á söguna.
Í meðfylgjandi PDF skjali eru fjögur verkefni: Spurningagerð þar sem nemendur útbúa sjálfir spurningar upp úr efninu, stafsetningarverkefni, ritun og hugtakakort. Hægt er að vinna meira með spurningarnar sem safnast í fyrsta verkefninu og sem dæmi að láta nemendur víxla blöðum og svara spurningum hvers annars í stílabók. Verkefnin er hægt að sjá hér fyrir neðan en til að nálgast PDF eintak í réttri prentupplausn þarf að velja skjalið 4. desember – Jóladraumur PDF.
Myndaskrá:
Jóakim Aðalönd: http://img11.deviantart.net