Að spinna sögu
now browsing by tag
Að spinna sögu
Að spinna sögu er nýstárleg og skemmtileg nálgun í ritunarkennslu. Nemendur tylla bréfaklemmu í gegnum blýantsodd og spinna henni í hringi. Oddur bréfaklemmunnar ákvarðar hvað sagan mun fjalla um hverju sinni, hvernig hún byrjar, hvaða persóna er í henni, hvert umhverfið er, innri tími, ytri tími, viðburðir, vandamál, endir og hvaða lærdóm má draga af sögunni. Svo er það nemendanna að láta allt ganga upp.
Á hverri skífu eru fjórir mismunandi möguleikar svo nemendur geta nýtt skjalið í fjögur ólík ritunarverkefni. Útkoman í nemendahópnum getur orðið ansi fjölbreytt og söguþráðurinn sömuleiðis skemmtilega óútreiknanlegur. Það væri því einnig áhugavert að nýta formið í framsögn.
Ef nota á skjalið oftar en einu sinni er tilvalið að lita reitina sem bréfaklemman lendir á gula þegar efnið er spunnið í fyrstu söguna, rauða í þeirri næstu, græna með þriðja skáldverkið og loks bláa. Neyðin kenndi naktri konu að spinna en skyldi hún hafa prófað að spinna sögur?