Kennarinn.is

Einn fyrir alla…

4. desember – Jóladraumur

[featured_image]
4. desember - Jóladraumur PDF
Download is available until [expire_date]
  • Version
  • Download 251
  • File Size 1.22 MB
  • File Count 1
  • Create Date 8. nóvember, 2015
  • Last Updated 15. nóvember, 2017

4. desember - Jóladraumur

Jóladraumur

Það þarf vart að kynna sögu Charles Dickens um fúllynda nískupúkann Ebenezer Scrooge sem heimsóttur var af öndum þess liðna. Karlgreyið fékk að kenna á því en batnandi mönnum er best að lifa. Sagan er nokkuð löng og á vef Hlusta.is má nálgast hana í 7 hljóðfælum sem eru á bilinu 10-20 mínútna langir. Enda þótt efnið sé sett fram sem fjórða sagan í jóladagatalinu er kjörið að deila henni á nokkra nestistíma á aðventunni samhliða styttri sögum.

Smelltu hér til að hlusta á söguna.

Í meðfylgjandi PDF skjali eru fjögur verkefni: Spurningagerð þar sem nemendur útbúa sjálfir spurningar upp úr efninu, stafsetningarverkefni, ritun og hugtakakort. Hægt er að vinna meira með spurningarnar sem safnast í fyrsta verkefninu og sem dæmi að láta nemendur víxla blöðum og svara spurningum hvers annars í stílabók. Verkefnin er hægt að sjá hér fyrir neðan en til að nálgast PDF eintak í réttri prentupplausn þarf að velja skjalið 4. desember - Jóladraumur PDF.

Myndaskrá:

Jóakim Aðalönd: http://img11.deviantart.net

joladraumur-01 joladraumur-04 joladraumur-02 joladraumur-03

 

 

 

 

Comments are Closed