Kennarinn.is

Einn fyrir alla…

Bergrisinn Arkta

„Tom verður að leysa verndarvætti Avantíu úr illum álögum. Tom heldur af stað til móts við bergrisann Arkta, vopnaður sverði og skildi. Tekst Tom að bjarga ríkinu frá algjörri eyðileggingu?“ (IÐNÚ ÚTGÁFA: ÓVÆTTAFÖR 3)

Sæslangan Sepron

saeslangan_sepron saeslangan_sepron2 saeslangan_sepron3 saeslangan_sepron4

„Avantíu stafar ógn af verndarvættum ríkisins, sem galdramaður hefur lagt á ill álög. Til að bjarga ríkinu og íbúum þess verður Tom að berjast við sjávarskrímslið Sepron upp á von og óvon!“ (IÐNÚ, ÚTGÁFA: ÓVÆTTAFÖR 2)

2. pakki (verkefni 5 – 8) – efnistök/markmið

Verkefni 5: Samsett orð og ritun

Í ævintýrinu um sæslönguna koma fyrir mörg samsett orð. Í fyrsta námsefnispakka þurfa nemendur að greiða úr smá flækju og para orð úr sögunni saman. Þau rita orðin jafnframt niður. Lykilorðavinna þessa þrautapakka felst í því að kynnast ýmsum hugtökum varðandi bókina sjálfa og fyrstu orðin eru blaðsíða, textalína og orð.

Ef nemendur finna fleiri samsett orð í sögunni og skrá í stílabók geta þeir unnið sér inn aukastig.

Verkefni 6: Nafnorð, eintala og fleirtala

Nemendur fletta bókinni og leita að 10 nafnorðum og rita í reiti fyrir ofan orðasúpu. Eintölumynd orðanna fer í dálka en fleirtölumyndir eru ritaðar í orðasúpuna. Nemendur ráða hvernig þeir raða orðum inn og fylla loks upp í súpuna. Hér er skemmtilegt tækifæri til að ljósrita afrakstur bekkjarins og búa til safn af ólíkum nafnorðasúpum úr bókinni. Í lykilorðinu er lögð áhersla á hugtakið greinaskil og aukastig fást með því að skrifa setningar sem innihalda orðin í orðasúpunni. Fullt hús stiga fæst með því byrja setningar á stórum staf og enda á punkti.

Verkefni 7: Tvöfaldir samhljóðar, ritun og leikur

Nú ráða teningar kasti! Nemendur þurfa 2 slíka hver til að klára þraut 7 og markmiðið er að finna orð í sögunni sem innihalda tvöfalda samhljóða. Orðin rita þau á réttan stað í töflunni. Dæmi: Fái nemandi 2 og 5 er valið hvaða reikniaðgerð skal nota.

5 – 2 = 3: Nemandi finnur orð í bókinni sem inniheldur –ff orð

5 + 2 = 7: Nemandi finnur orð í bókinni sem inniheldur –mm orð

5 x 2 = 10: Nemandi finnur orð í bókinni sem inniheldur –rr orð

5 / 2 = ?: Gengur þessi reikniaðgerð upp miðað við forsendur? Umræður.

Hvert kast gefur rétt á einu orði og tilvalið að nota tímatakmörk (t.d. 2-3 mínútur) til að finna orðið í bókinni. Þá geta 2 og 2 spilað saman og tekið tímann til skiptis. Ef ekki finnst orð innan tímaramma má setja x yfir reitinn eða segja pass. Athygli er vakin á því að engin orð finnast í textanum sem innihalda –ff nema samsetta orðið hafflötur. Eins eru eingöngu 2 orð sem innihalda –bb (pabbi bls. 43 og krabba bls. 74). Lykilorð þessa verkefnis leggur áherslu á málsgrein og raðtöluorð og aukastigin tengjast tímatöku þar sem hvert orð gefur 5 stig á fyrstu 30 mínútur leiksins.

8. Hugarkort, bókmenntahugtök upprifjun og ritun

Nemendur rifja upp ævintýrið um Sepron og fylla inn í hugarkort. Skrá þarf upphaf, atburði, endi, aðalspersónur, aukapersónur og sögusvið. Lykilorðið leggur áherslu á hugtökin blaðsíða og textalína, og aukastig fást með því að margfalda 2 teninga saman.

 

Lykilorð 2. pakka: Hetjan Tom frelsar ófreskjuna.

 

Elddrekinn Fernó

elddrekinn_fernoelddrekinn_ferno2elddrekinn_ferno3elddrekinn_ferno4

 

„Illviljaður töframaður hefur lagt álög á verndarvætti Avantíu og aðeins sönn hetja getur bjargað þeim og komið í veg fyrir að þeir leggi landið í auðn. Er Tom hetjan sem Avantía hefur beðið eftir?“ (Iðnú, útgáfa: Óvættaför 1)

 

Í þessum fyrsta þrautapakka glíma nemendur við margvísleg málfræðiverkefni. Í upphafi eru sérnöfnin í lestextanum skoðuð og þeirra leitað í orðasúpu. Nemendur þurfa að skrá lykilorð niður á sérstakt skjal og geta jafnframt unnið sér inn aukastig með því að safna samnöfnum úr textanum og skrá í stílabók eða á bréfsefni.

Í verkefni 2 vinna nemendur áfram með sérnöfn en raða þeim nú í stafrófsröð annars vegar og eftir lengd hins vegar. Raða þarf bókstöfum í hringjum rétt til að nálgast lykilorð nr. 2. Sérnöfn eru heiti manna, staða, dýra, hluta eða annarra fyrirbæra svo aukastigin felast í því að átta sig á þeirri flokkun, finna sögupersónurnar og skrá heiti þeirra og hlutverk í sögunni. Þá er jafnframt mikilvægt að muna eftir stórum staf í upphafi og enda setningu á punkti. Sem fyrr geta nemendur unnið í stílabók eða á bréfsefni.

Þriðja verkefnið er eyðufyllingaverkefni sem felst í því að setja sagnorð á rétta staði við myndatexta. Hér er um að gera að þjálfa fínhreyfingar, sýna listræn tilþrif og lita myndirnar fallega. Lykilorðið felst í því að leita að sagnorðinu í spurningunni sjálfri og aukastigin tengjast myndskreytingunni þar sem mest er hægt að fá 4 stig. Nemendur eru hvattir til að skoða stigagjöfina út frá stærðfræðinni og setja hana upp sem margföldunardæmi.

Í fjórða og síðasta verkefninu reynir á lesskilning þar sem nemendur svara 10 fjölvalsspurningum (krossaspurningum). Fyrir hvert rétt svar fæst 1 stig. Ef að er gáð má sjá nokkra undirstrikaða bókstafi og sé þeim rétt raðað myndast fjórða og síðasta lykilorð fyrsta verkefnapakkans.

Lykilorð fyrsta námsefnispakkans er: Húgó konungur er réttlátur.

Ýmis fylgiskjöl með verkefnapökkunum við bækurnar Óvættaför má finna hér.