100 bóka áskorun Kennarans er lestrarátak sem byggist á því að börn lesa 100 bækur yfir 6 mánaða tímabil og skila inn þátttökuseðlum. Samhliða því að lesa bækur og tímarit þurfa börn að skrá niður bókatitlana og senda inn ásamt nafni, síma og heimilisfangi. Fyrsta lestrarátakið hóf göngu sína á vordögum 2016 og nú stendur 5. átakið yfir. Dregið verður úr innsendum seðlum fyrstu vikuna í september næstkomandi. Smelltu HÉR til að sækja þátttökugögn.