Kennarinn.is

Einn fyrir alla…

Sóley og töfrasverðið – Miðar

Prentaðu miðana út og klipptu niður. Þegar barn hefur lokið við að lesa bókina Sóley og töfrasverðið fær það miða til að líma inn í þátttökuskjalið sitt í Ljósaseríulestrarklúbbnum.

Smelltu á bláa reitinn hér til vinstri til að sækja PDF eintak af skjalinu.

Sóley og töfrasverðið – Lausnahefti

Lausnahefti með lesskilningisverkefninu Sóley og töfrasverðið.

Smelltu á bláa reitinn hér til vinstri til að sækja PDF eintak af lausnaheftinu.

Sóley og töfrasverðið

Bókin Sóley og töfrasverðið er ein af barnabókaperlum Ljósaseríunnar og gefin út af Bókabeitunni. Höfundi, Eyglóu Jónsdóttur og myndhöfundi, Hafsteini Hafsteinssyni, eru færðar kærar þakkir fyrir að veita Bókabeitunni og Kennaranum.is góðfúslegt leyfi til að vinna með texta og myndir.

Lesskilningsheftið samanstendur af 12 verkefnum sem ýmist eru leyst beint í heftið eða í stílabók. Síðasta verkefnið er tilvalið að nýta sem námsmatsverkefni. Hefti með lausnum má nálgast hér.

Smelltu á bláa reitinn hér til vinstri til að sækja PDF eintak af þrautaheftinu.