Kennarinn.is

Einn fyrir alla…

Spurningar – Afi sterki og skrímslin í Kleifarvatni

Bókin Afi sterki og skrímslin í Kleifarvatni er ein af barnabókaperlum Ljósaseríunnar og gefin út af Bókabeitunni. Höfundi, Jennýju Kolsöe, og myndhöfundi, Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur, eru færðar kærar þakkir fyrir að veita Bókabeitunni og Kennaranum.is góðfúslegt leyfi til að vinna með texta og myndir.

Spurningabókamerkið samanstendur af 20 spurningum og hugsað sem kennslugagn fyrir safnakennara, íslenskukennara, sérkennara, ÍSAT kennara og aðra sem efla vilja lestur og lesskilning ungra lesenda. Bókamerkið er sett upp sem fjórbrot en einnig má nýta það á bæklingsformi í stærðinni A5. Aftan á bókamerkinu gefst nemendum færi á að gefa bókinni umsögn og stjörnur. Best er að prenta spurningabókamerkið/bæklinginn út í 100% stærð. Leslykil, með svörum við spurningunum, má nálgast hér.

Afi sterki og skrímslin í Kleifarvatni

Bókin Afi sterki og skrímslin í Kleifarvatni er ein af barnabókaperlum Ljósaseríunnar og gefin út af Bókabeitunni. Höfundi, Jennýju Kolsöe, og myndhöfundi, Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur, eru færðar kærar þakkir fyrir að veita Bókabeitunni og Kennaranum.is góðfúslegt leyfi til að vinna með texta og myndir.

Leslykillinn samanstendur af 20 spurningum og svörum og hugsaður sem margnota kennslugagn fyrir safnakennara, íslenskukennara, sérkennara, ÍSAT kennara og aðra sem efla vilja lestur og lesskilning ungra lesenda. Efnið er ekki hugsað sem dreifildi til nemenda sjálfra en nálgast má spurningarnar upp úr bókinni hér. Leslykillinn sjálfur er á bæklingsformi, í þríbroti og best að prenta hann út í 100% stærð.

Afi sterki og skrímslin í Kleifarvatni – miðar

Prentaðu miðana út og klipptu niður. Þegar barn hefur lokið við að lesa bókina Afi sterki og skrímslin í Kleifarvatni fær það miða til að líma inn í þátttökuskjalið sitt í Ljósaseríulestrarklúbbnum.

Smelltu á bláa reitinn hér til vinstri til að sækja PDF eintak af skjalinu.