100 bóka áskorun Kennarans er lestrarátak sem byggist á því að börn lesa 100 bækur yfir 6 mánaða tímabil og skila inn þátttökuseðlum. Samhliða því að lesa bækur og tímarit þurfa börn að skrá niður bókatitlana og senda inn ásamt nafni, síma og heimilisfangi.
Lestrarátakið hóf göngu sína 2016 og er nú haldið árlega. Það hefst 1. september og lýkur 1. mars.
Önnur lestrarátök á vegum Kennarans eru 100 daga lestrarátakið, sérstaklega hugsað fyrir 1. og 2. bekk, og 100 lesnar stundir fyrir börn og foreldra í leik- og grunnskólum, en tilgangur þess síðastnefnda er að fjölga gæðastundum fjölskyldna og uppgötva ævintýraheima bókmenntanna í sameiningu.
Fjórða lestrarátakið hóf göngu sína haustið 2017 og skilafrestur var 1. mars 2018. Dregið var úr innsendum seðlum 7. mars og að þessu sinni var það Ernir Ívarsson, nemandi á miðstigi Varmalandsdeildar Grunnskóla Borgarfjarðar sem hreppti vinninginn en hann fékk:
Tertugallerý Myllunnar gaf bekknum hans Ernis glæsilega 30 manna tertu og sömuleiðis fékk Varmalandsdeild Grunnskólana Borgarfjarðar spilagjöf frá My Country. Við óskum Erni Ívarssyni til hamingju með sigurinn. Aðrir þátttakendur voru leystir út með viðurkenningarskjali og glaðningi frá IÐNÚ útgáfu.
Sá skemmtilegi atburður átti sér stað að bekkjarfélagi Ernis, Hugo Hidalgo Cubas, las 200 bækur á tímabilinu og sendi því 2 sett af þátttökugögnum inn. Það var ekki annað hægt en að verðlauna þetta afrek sérstaklega og fékk Hugo því einnig bókaglaðning frá Eddu útgáfu og Iðnú útgáfu, auk 10.000 kr. gjafabréfs frá Brass og þjóðsögupakka frá My Country. Gott ef þetta er ekki bara Íslandsmet í lestri barna? Við óskum Hugo og fjölskyldu innilega til hamingju með afrekið!
Þriðja lestrarátakið hóf göngu sína vorið 2017 og skilafrestur var 1. september 2017. Dregið var úr innsendum seðlum sunnudaginn 17. september 2017 og að þessu sinni var það Anna Bryndís Andrésdóttir, þriðji bekkingur í Lágafellsskóla Mosfellsbæ sem hneppti gjafakörfuna en hún fékk:
Annað lestrarátakið hóf göngu sína haustið 2016 og skilafrestur var 1. mars 2017. Dregið var úr innsendum seðlum miðvikudaginn 15. mars 2017 og að þessu sinni var það Tristan Leví Heimisson, fyrsti bekkingur í Grunnskóla Reyðarfjarðar sem hneppti gjafakörfuna en hann fékk:
# Iconia One 7, Acer spjaldtölvu og 4 miða á Hvalasafnið í Reykjavík frá Kennaranum útgáfu
Fyrsta lestrarátakið hóf göngu sína á vordögum 2016 og skilafrestur var 1. september. Dregið var úr innsendum seðlum miðvikudaginn 7. september 2016 og vinningurinn er ekki af verri endanum. Það var Svanhildur Margrét, 10 ára nemandi í Hlíðaskóla sem bar sigur úr býtum en hún fékk:
Við óskum Svanhildi Margréti innilega til hamingju með sigurinn. Aðrir þátttakendur voru leystir út með veglegri gjöf frá Útipúkum.is og fengu bókina Útivist og afþreying fyrir börn.