Krossgötur
Hver verkefnapakki inniheldur 4 verkefnablöð. Í þjóðsögunni Krossgötur er unnið með lesskilning þar sem nemendur finna orð sem vantar í texta og setja á réttan stað í krossgátu. Einnig er unnið með orðaforða og ritun þar sem nemendur hlusta eftir þriggja, fjögurra og fimm stafa orðum í upplestrinum og skrá niður. Málfræðin að þessu sinni felst annars vegar í því að þekkja á milli breiðra og grannra sérhljóða (y/ý) og hins vegar að kynnast tvíhljóðinu ey. Þá finna nemendur og skrá niður 5 orð (í texta að eigin vali) sem byrja á y, ý og ey.
Smelltu á bláa linkinn hér fyrir ofan til að sækja PDF eintak af efninu.
Námsefnið er unnið í samstarfi við Mitt Ísland sem gefur þjóðsöguspilin út og færir kennurum nú þessa gjöf. Í desember 2017 kom út 32 blaðsína þrauta- og verkefnabók þar sem áherslan er að læra í gegnum afþreyingu. Í námsefninu á síðu Kennarans hefur meiri málfræði verið bætt við hvern pakka sem tengist námsmarkmiðum miðstigs í íslensku.
Hægt er að panta þjóðsöguspilin og þrauta- og verkefnabókina með þjóðsögunum hér.
Uppruni Mývatns
Hver verkefnapakki inniheldur 4 verkefnablöð. Í þjóðsögunni Mývatn er unnið með dulmálslykil þar sem nemendur finna rétt svar með því að lesa úr hnitakerfi. Einnig er unnið með hlustun og skráningu þar sem nemendur velja 12 orð úr sögunni af handahófi, orðflokkagreina þau og raða í stafrófsröð. Þá leita nemendur upplýsinga um 10 stærstu stöðuvötn Íslands og rýna í bækling Umhverfsisstofnunar um Mývatn og Laxá, í leit að týndum orðum. Nauðsynlegt er að prenta þann bækling út og fjölfalda fyrir nemendur. Á síðasta verkefnablaðinu gefst jafnframt gott tækifæri til að vinna ennfrekar með hugtökin í verkefninu og útbúa orðskýringar við þau í stílabók.
Lausn dulmálslykilsins á verkefnablaði 1: Þjóðsagan fjallar um það hvernig Mývatn á Norðurlandi varð til. Hvað finnst þér um þessa skýringu?
Týnd orð sem koma ekki fyrir í bæklingi á verkefnablaði 4: Kúluskítur, leirböð, ofauðgun, kísilgúr og náttúruperla.
Smelltu á bláa linkinn hér fyrir ofan til að sækja PDF eintak af efninu.
Námsefnið er unnið í samstarfi við Mitt Ísland sem gefur þjóðsöguspilin út og færir kennurum nú þessa gjöf. Í desember 2017 kom út 32 blaðsína þrauta- og verkefnabók þar sem áherslan er að læra í gegnum afþreyingu. Í námsefninu á síðu Kennarans hefur meiri málfræði verið bætt við hvern pakka sem tengist námsmarkmiðum miðstigs í íslensku.
Hægt er að panta þjóðsöguspilin og þrauta- og verkefnabókina með þjóðsögunum hér.
Djákninn frá Myrká
Hver verkefnapakki inniheldur 4 verkefnablöð. Í þjóðsögunni Djákninn á Myrká eru hugtökin sögusvið og söguþráður skoðuð í fyrsta verkefninu þar sem nemendur vinna með krossorðaglímu. Þá er unnið með sérnöfn sem fyrir koma í sögunni, þeim raðað í stafrófsröð og leitað svara við því hvað það er sem nefnt er saltarinn í þjóðsögunni.
Djákninn á Myrká lést af slysförum áður en hann kynntist betur konunni sem hann hreifst af. Hefði hann haldið dagbók sem afturganga, hvernig hefði síðasta færslan litið út? Nemendur setja sig í spor djáknans í ritunarverkefni og að lokum safna þeir nafnorðum, sagnorðum og lýsingarorðum í krukkur áður en útbúnar eru setningar sem innihalda eitt orð úr hverjum flokki.
Smelltu á bláa linkinn hér fyrir ofan til að sækja PDF eintak af efninu.
Fyrir áhugasama má nálgast íslenska teiknimynd með þjóðsögunni hér. Hún var framleidd af fyrirtækinu Græna gáttinn árið 1993. Einn má hlusta á flutning Mannakorna á laginu Garún, Garún.