Kennarinn.is

Einn fyrir alla…

Jólaratleikur Stúfs – Viðurkenningarskjal

Þáttökuviðurkenningin er í formi jólakúlu. Stúfi var sérlega umhugað um að kúlurnar gætu bæði glatt þátttakendur og skreytt stofuna þeirra – og bókasafnið. Hann mælir því með að jólakúlurnar séu klipptar út, plastaðar og spotti festur í áður en þær eru afhentar. Föndurglöðustu kennararnir geta líka prentað út myndir af þátttakendum, klippt út og límt aftan á jólakúlurnar áður en þær eru plastaðar.

 

Frímerki Stúfs

Smellið á bláa hnappinn hér ofar til að sækja PDF skjal með frímerkjum Stúfs. Klippið frímerkin út og límið á umslögin með boðskortunum. Ef nemendur vilja skrifa Stúfi svarbréf á aðventunni er tilvalið að leyfa þeim að fá eintak af frímerkinu til að líma á umslag svarbréfsins.

Heimilisfangið er: Stúfur jólasveinn, Grýluhellir Esjunni, 162 Kjalarnes, (dreifbýli).

Bókabeitan, Síðumúla 31, 108 Reykjavík tekur að sér að koma bréfum til Stúfs á leiðarenda. Tilvalið er að safna bréfum nemenda saman í A4 umslag og senda til þeirra.

 

Jólaratleikur Stúfs – Svarlykill

Svarlykillinn er trúnaðargagn innsiglað af Grýlu og Leppalúða. Á því eru lausnir við öllum þrautunum og upplýsingar um hvernig stigin deilast niður á þrautirnar. Svarlykillinn auðveldar skipuleggjendum ratleiksins að reikna stigin út og finna sigurvegarana.

Jólaratleikur Stúfs – Þátttökublað

Þátttökublaðið samanstendur af fimm svarblöðum og reglublaði aftast. Áríðandi er að lesa leikreglur Stúfs í upphafi, og þá ekki síst mikilvægastu regluna sem er sú að slíta ekki niður miðana sjálfa og safna þeim, heldur bara lesa það sem stendur, leysa þrautirnar og skrá svörin á þátttökublöðin. Nemendur geta unnið sér inn 100 stig úr þrautunum sjálfum, plús sjö aukastig.

Á þátttökublaðinu sést hversu mörg stig hægt er að fá fyrir hverja þraut. Kennari notar svarlykil við yfirferðina. Fremst á þátttökublaðinu er autt hvítt flagg til að skrá heildarstigafjölda liðsins.

Jólaratleikur Stúfs

Jólaratleikurinn er unnin við bækur Stúfs; Stúfur hættir að vera jólasveinn og Stúfur leysir ráðgátu. Bækurnar eru eftir Evu Rán Þorgeirsdóttur og myndskreyttar af Blævi Guðmundsdóttur. Höfundur ratleiksins er Unnur María Sólmundsdóttir. Efnið er á 20 miðum og stútfullt af skemmtilegum þrautum sem byggjast meðal annars á rökhugsun, samvinnu og útsjónarsemi. Ekki er nauðsynlegt að hafa lesið bækurnar um Stúf en þó er möguleiki að ná sér í eitt og eitt aukastig sem tengist innihaldi þeirra.

Smelltu á bláa linkinn hér ofar til að sækja PDF eintak af jólaratleik Stúfs.

Boðskort Stúfs

Boðskortið er samið af Stúf sjálfum enda er hann ótrúlega spenntur að kynna ratleikinn sinn. Hann mælir með því að skipuleggjandi ratleiksins prenti skjalið út og sendi þátttökubekkjunum boðskortið í umslagi og með innanhúspóstdreifingu skólans. Það er nefnilega ótrúlega spennandi að fá jólapóst! Stúfur gaf meira að segja út frímerki af þessu hátíðlega tilefni.

Smelltu á bláa linkinn hér ofar til að sækja PDF eintak af boðskortinu.

Smelltu hér til að sækja jólafrímerki Stúfs.