Brandarastærðfræði er ný og skemmtileg viðbót við stærðfræðikennsluna. Markmiðið er að brjóta upp vinnubókavinnu með orðadæmum, efla orðaforða, lesskilning og samþætta stærðfræði og íslensku. Námsefnið er hugsað frá 3.-4. bekk og upp á miðstig en getur í raun nýst í nýbúafræðslu og sérkennslu á hvaða stigi sem er.
Hver brandarapakki inniheldur 12 skrýtlur og spurningar þeim tengdum, sem nemendur leysa í reikningsbækur. Nú er málið bara að prenta út, plasta, festa renningana á lyklakippuhring og smella á vinnustöð næst þegar þú skipuleggur stærðfræðihringekju. Hver brandari er númeraður og það er leikarinn góðkunni Gói Karlsson sem ríður á vaðið að túlka viðfangsefnið, en hann ásamt Lóu Dís Finnsdóttur og ljósmyndastofunni Torfi Pictures styrkja fyrsta pakkann.