Kennarinn.is

Einn fyrir alla…

Listin að lesa

Listin að lesa og skrifa er örbókaflokkur sem Námsgagnastofnun gaf út. Þetta eru frábærar heimalestrarbækur ásamt vinnubókum og lestrarspilum. Kennslugögn Kennarans eru hugsuð sem stuðningsefni við bækurnar, og viðbótarefni til að auðvelda kennurum og foreldrum ennfrekar að kenna börnum listina að lesa og skrifa.

Hér má sækja orðasúpu, skriftarrenninga og eyðufyllingar sem tengjast hverri bók. Orðalistinn er valinn með hliðsjón af texta og teikningum sem koma fyrir í bókunum.

  • Orðasúpan er með hefðbundnum hætti, nemendur finna orð sem eru falin ýmist afturábak eða áfram, upp eða niður, og á ská.

  • Skriftarrenninga má nota á margvíslegan máta. Þeir eru hugsaðir sem fjölnota kennslugagn til útprentunar og plöstunar. Sjá fleiri kennsluhugmyndir.

  • Eyðufyllingaverkefni, hér er búið að taka nokkra stafi úr orðalistum skriftarrenningana. Nemendur þurfa að draga skriftarrenning (1-5) og fylla rétta stafi inn í orðin.