Kennarinn.is

Einn fyrir alla…

Skyndibiti – Kennsluleiðbeiningar

[featured_image]
Skyndibiti - Kennsluleiðbeiningar PDF
Download is available until [expire_date]
  • Version
  • Download 4
  • File Size 56.00 KB
  • File Count 1
  • Create Date 9. apríl, 2024
  • Last Updated 15. október, 2024

Skyndibiti - Kennsluleiðbeiningar

Þetta reddast! Skyndibiti

Verkefni 1 - Lestur

Markmið, að:
  • læra orð tengdum skyndibitum
  • æfa íslensku málhljóðin
  • þekkja hugtakið sérnafn
Innlögn:

1) Kennari dreifir fylgiskjalinu Orð og myndir 8 sem inniheldur sama orðabanka og Fánaveifurnar. Hann les textana með nemendum, skoðar orðin eftir þörfum og fer yfir fylgiskjalið með orðalistanum.

2) Kennari gefur nemendum hlutverk sögupersóna. Þeir lesa samtölin upphátt.

3) Kennari leggur inn hugtakið sérnafn. Með hans aðstoð finna nemendur sérnöfnin í textanum og draga hring utan um þau.

Kennslugögn:

Ritföng.

Tjáning, samræður:

Nemendur æfa sig í að panta mat. Kennari setur á svið símtal. Nemendur hringja í kennara og panta skyndibita.

Fylgiskjal:

Verkefni 2 - Orðavinna

Markmið, að:
  • geta afritað orð
  • festa orðmyndir í minni
  • skrifa einfaldar málsgreinar
Innlögn:

1) Nemendur skoða textann í verkefni 1 og skrifa orðin sem vantar í málsgreinarnar á línurnar.

2) Orðin á línunum skrifa nemendur svo á rétta staði í krossgátunni.

3) Nemendur endurrita loks málsgreinarnar í stílabók.

Lausn:

1. drykkur, 2. vefja, 3. álegg, 4. samloku, 5. hamborgari, 6. sendill, 7. núðlur, 8. krydd, 9. pítsu.

Kennslugögn:

Ritföng og stílabók.

Verkefni 3 - Ritun

Markmið, að:
  • læra sagnorðið að finnast
  • geta notað lýsingarorð til að tjá sig um mat
  • skrifa einfaldar málsgreinar
Innlögn:

1) Kennari útskýrir sagnorðið að finnast og skoðar töfluna með nemendum.

2) Kennari fer yfir lýsingarorðin góður, vondur og ágætur sem nota má yfir mat. Lýsingarorðin eru í karlkyni, kvenkyni og hvorugkyni. Kennari metur út frá nemendahópnum hvort þörf sé á að aðstoða nemendur fyrst við að lita yfir nafnorðin og lýsingarorðin með bláum, rauðum og grænum lit eða teikna tákn fyrir kk, kvk og hk áður en lengra er haldið.

3) Með aðstoð töflunnar skrifa nemendur 10 málsgreinar sem byrja á Mér finnst. Þeir velja svo eitt af lýsingarorðunum í síðasta dálknum sem passar við skoðun þeirra á hverjum mat fyrir sig. Dæmi: Mér finnst hamborgari ágætur.

Kennslugögn:

Ritföng.

Tjáning, umræðupunktar:

Í framhaldi af verkefninu skapar kennari umræður um hollan og óhollan mat. Einnig er hægt að koma inn á hugtök eins og grænmetisæta og vegan.

Verkefni 4 - Rökhugsun

Markmið, að:
  • festa orðaforða í minni
  • beita rökhugsun
  • þjálfa lesskilning
Innlögn:

1) Kennari rifjar upp með nemendum orðin sem eiga við myndirnar.

2) Kennari og nemendur lesa saman fullyrðingarnar. Kennari aðstoðar nemendur eftir þörfum, jafnvel með látbragði.

3) Nemendur skrifa í reitina númerið sem passar við hverja fullyrðingu.

Kennslugögn:

Ritföng.

Tjáning, samræður:

Hvaða álegg finnst þér gott? Kennari spyr nemendur og leggur inn ýmsar áleggstegundir sem nemendur nefna.

Verkefni 5 - Skilningur

Markmið, að:
  • kunna að svara með heilli málsgrein
  • þjálfa lesskilning
Innlögn:

1) Kennari rifjar upp textann í verkefni 1 og leggur inn hugtakið að svara með heilli málsgrein.

2) Kennari les spurningar með nemendum.

3) Nemendur svara spurningunum með heilli málsgrein og byrja svörin á undirstrikuðu orðunum.

Lausn:

  1. Ryan hringir í Pítsa og drykkur.
  2. Hann pantar sér pítsu.
  3. Á pítsunni er hakk, sveppir, paprika og ostur.
  4. Ryan vill fá gos að drekka.
  5. Sendillinn kemur með pítsu.
  6. Joy pantar sér vefju.
  7. Söru finnst hamborgari bestur.
  8. Alex pantar sér samloku.
  9. Á samlokunni er skinka og ostur.
  10. Samlokan er heit.
Kennslugögn:

Ritföng.

Verkefni 6 - Flokkun

Markmið, að:
  • festa í minni orð yfir mat og drykk
  • læra stafrófið
Innlögn:

1) Skoða og rifja upp orðin í Orðabankanum neðst á síðunni. Orðin má finna á fylgiskjali Orð og myndir 8 og í Orðasjóði 19 og 20 sem mælt er með sem undanfara þessa verkefnaheftis. Nemendur eiga því að þekkja öll orðin í Orðabankanum.

2) Kennari fer yfir og útskýrir flokkana fjóra; álegg, brauð, drykkur og grænmeti/ávextir. Nemendur skrá orðin í Orðabankanum undir réttan flokk eftir því hvort þau heyra undir álegg, brauð, drykk eða grænmeti/ávexti.

Lausn:

  • Álegg: beikon, skinka, hakk, pepperóní og ostur.
  • Brauð: hamborgarabrauð, tortillakaka, pylsubrauð, pítubrauð og samlokubrauð.
  • Drykkur: sódavatn, mjólk, gos, mjólkurhristingur og djús.
  • Grænmeti/ávextir: laukur, tómatur, sveppir, ananas og paprika

3) Kennari fer yfir stafrófið með nemendum. Finna má útprentanlegt stafróf í fylgigögnum með verkefnaheftinu Þetta reddast! Skólinn. Nemendur skrifa orðin í stafrófsröð í stílabók.

Kennslugögn:

Ritföng og stílabók.

Fylgiskjöl:

Verkefni 7 - Málfræði

Markmið, að:
  • læra sagnirnar að panta, að borða, að drekka og að fá
  • kynnast stigbreytingu lýsingarorða
  • geta á einfaldan hátt tjáð hvaða matur viðkomandi finnst góður og/eða bestur
Innlögn:

1) Nemendur finna fjögur sagnorð í nafnhætti í verkefni 1 og skrá á línurnar. Sagnorðin eru skáletruð í textanum.

Lausn: Að drekka, að panta, að borða, að fá.

2) Kennari vinnur verkefnalið 2 með nemendum. Markmiðið með því að kynna þessi lýsingarorð fyrir nemendum er að þeir geti á einfaldan hátt tjáð hvað þeim finnst gott eða best að borða. Nemendur endurrita lýsingarorðin í reitina. Lýsingarorðin eru í kk, kvk og hk.

3) Með aðstoð kennara stigbreyta nemendur lýsingarorðin stór og lítill. Myndirnar eru númeraðar til að auðvelda þeim að átta sig á stigbreytingunni.

Kennslugögn:

Ritföng.

Umræður, tjáning:

Kennari skapar umræður meðal nemenda um mat og nemendur þjálfast í að segja hvaða matur þeim finnst góður, ekki góður eða bestur.

Verkefni 8 - Miðjumat

Markmið, að:
  • gefa nemendum tækifæri til að sjá hvað þeir kunna úr fyrri hluta heftisins
  • veita kennara tækifæri til endurgjafar áður en lengra er haldið
Innlögn:

1) Nemendur skrifa rétt orð á línurnar undir myndunum.

2) Nemendur lesa orðin og svara spurningunni Hvað er þetta?

Lausn: Álegg.

3) Nemendur lesa lýsingarorðin neðst á blaðsíðunni. Þeir raða lýsingarorðunum í töfluna eftir stigbreytingu og kyni. Benda má nemendum á að þeir unnu eins verkefni í lið 2, verkefni 7.

Lausn:

  • Hamborgari: góður, betri, bestur.
  • Píta: góð, betri, best.
  • Pylsubrauð: gott, betra, best.
Kennslugögn:

Ritföng.

Verkefni 9 - Lestur

Markmið, að:
  • læra orð tengdum skyndibitum og veitingastöðum
  • æfa íslensku málhljóðin
  • þjálfa lesskilning
  • læra afmælissönginn
Innlögn:

1) Kennari les textann með nemendum og fer yfir feitletruðu orðin eftir þörfum með fylgiskjalið Orð og myndir 8 til hliðsjónar.

2) Nemendur rifja upp forréttina, aðalréttina og eftirréttina sem hver og einn pantar sér og teikna á diskana, í skálarnar og glösin. Þeir lita svo myndina.

3) Kennari skrifar á töfluna fyrsta erindið í afmælissöngnum sem pabbi og mamma syngja fyrir Önu og kennir nemendum lagið. Nemendur skrifa erindið í stílabók.

Kennslugögn:

Ritföng, litir og stílabók.

Fylgiskjal:

Verkefni 10 - Þraut

Markmið, að:
  • læra heiti yfir borðbúnað
  • geta afritað orð
Innlögn:

1) Nemendur skoða fylgiskjalið Orð og myndir 8. Þeir skrá heiti borðbúnaðar á línurnar.

2) Nemendur finna orðin yfir borðbúnað í orðasúpunni.

3) Nemendur þýða orð yfir borðbúnað yfir á eigið tungumál í stílabók.

Kennslugögn:

Ritföng og stílabók.

Fylgiskjal:

Verkefni 11 - Ritun

Markmið, að:
  • skrifa einfaldar málsgreinar
  • læra tímatengingarnar fyrst, svo, síðan, næst og að lokum
Innlögn:

1) Kennari fer yfir myndir og tímatengingar með nemendum.

2) Nemendur skoða orðin í orðabankanum neðst á síðunni með aðstoð kennara og nota þau við ritun textans.

3) Með aðstoð kennara skrifa nemendur texta út frá myndunum.

Lausn:

  • Fyrst þarf Ryan að finna góðan veitingastað.
  • Svo fer hann á veitingastaðinn.
  • Síðan les Ryan matseðilinn og pantar sér mat.
  • Næst fær Ryan hamborgara með gosi, sósu og frönskum.
  • Að lokum borgar Ryan fyrir matinn.
Kennslugögn:

Ritföng.

Verkefni 12 - Rökhugsun

Markmið, að:
  • festa orðmyndir í minni
  • beita rökhugsun
  • læra að leysa Sudokuþrautir
Innlögn:

1) Kennari dreifir fylgiskjali 8:1 (aftast í nemendahefti). Nemendur klippa út myndirnar á fylgiskjalinu sem merktar eru verkefni 12. Gott er að benda nemendum á að klippa út myndir fyrir eina Sudokuþraut í einu.

2) Nemendur líma myndirnar í rétta reiti til að leysa Sudokuþrautirnar.

3) Að lokum skrifa nemendur heiti skyndibita og drykkja á línurnar neðst á blaðsíðunni.

Kennslugögn:

Skæri, lím og ritföng.

Fylgiskjal:
  • Fylgiskjal 8:1 (aftast í nemendahefti)

Verkefni 13 - Skilningur

Markmið, að:
  • þjálfa lesskilning
  • læra að mynda spurningu
Innlögn:

1) Með aðstoð kennara rifja nemendur upp lestexta í verkefni 9.

2) Nemendur lesa spurningarnar og svara með því að merkja X í þá reiti sem eiga við.

Lausn:

  • Hver á afmæli? -Ana.
  • Hver fær súpu í forrétt? -Mamma, Ana, pabbi.
  • Hver pantar fisk og franskar? -Pabbi.
  • Hver fær kjúklinganagga? -Mamma.
  • Hver pantar pítu? -Ana.
  • Hver fær ís í eftirrétt? -Mamma, pabbi.
  • Hver fær hrásalat? -Mamma.
  • Hver fær mjólkurhristing? -Ana.
  • Hver fer á veitingastað? -Mamma, Ana, pabbi.
  • Hver fær salat? -Ana.

3) Nemendur endurrita spurningarnar í stílabók.

Kennslugögn:

Ritföng og stílabók.

Verkefni 14 - Skilningur

Markmið, að:
  • þjálfa stigbreytingu
Innlögn:

1) Kennari rifjar upp með nemendum stigbreytingu í verkefni 7. Nemendur ná í fylgiskjal 8:1 (aftast í nemendahefti) og klippa núna út myndir sem merktar eru verkefni 14.

2) Nemendur og kennari velja fjórar myndir sem nemendur raða og líma inn í fyrri stigbreytinguna.

Lausn: franskar, gos, pítsusneið og pylsa.

3) Nemendur og kennari velja þrjár myndir sem nemendur raða og líma inn í seinni stigbreytinguna.

Lausn: hamborgari, samloka og mjólkurhristingur.

Kennslugögn:

Skæri og lím.

Fylgiskjal:
  • Fylgiskjal 8:1 (aftast í nemendahefti).

Verkefni 15 - Málfræði

Markmið, að:
  • kunna hugtakið málsgrein
  • geta skrifað einfaldar málsgreinar
  • muna eftir stórum upphafsstaf og punkti
  • þjálfa nefnifall og þolfall
Innlögn:

1) Kennari rifjar upp texta í verkefni 9 með nemendum og útskýrir hugtakið málsgrein.

2) Kennari fer yfir að málsgrein byrjar á stórum upphafsstaf og endar á punkti. Hann skoðar með nemendum þau orð sem eru með stórum staf og þau orð sem enda á punkti. Þau gefa vísbendingar um hvernig málsgreinin byrjar og endar.

3) Nemendur skrifa orðin í réttri röð þannig að málsgreinarnar eru rétt uppbyggðar. Nemendur geta skoðað textann í verkefni 9 sér til aðstoðar.

Lausn:

  • Pabbi pantar sér fisk og franskar.
  • Til hamingju með afmælið.
  • Þau fara á veitingastað.
  • Þau panta sér súpu.
  • Pabbi biður um gos.
  • Mamma pantar sér kjúklinganagga.
  • Ana pantar sér mjólkurhristing.
  • Ana biður um djús.
  • Hún á afmæli í dag.
  • Mamma og pabbi syngja afmælisönginn.
  • Pabbi og mamma panta ís.
Kennslugögn:

Ritföng.

Aukaverkefni, Veiðimann:

Kennari dreifir skjalinu Veiðimann og nemendur klippa spilin út. Gott er að plasta gögnin áður en þeim er dreift til nemenda. Nemendur spila Veiðimann og æfa þannig þolfall. Nemendur geta tekið spilið með sér heim til að spila með forráðamönnum og systkinum, rifja upp innihald verkefnapakkans og byggja brú á milli heimilis og skóla.

Fylgiskjal:

Verkefni 16 - Lokamat

Markmið, að:
  • gefa nemendum tækifæri til að sjá hvað þeir kunna eftir yfirferð heftisins
  • veita kennara tækifæri til endurgjafar
Innlögn:

1) Nemendur skoða myndir og draga hring um rétt orð.

2) Nemendur tengja saman orð og mynd.

3) Nemendur teikna og lita myndir af skyndibitum í reitina.

Kennslugögn:
  • Ritföng og litir.

Orðabanki

Í lok hvers námsefnispakka er Orðabanki, þ.e. gátlisti með 40 hugtökum sem áhersla hefur verið lögð á í heftinu. Þar haka nemendur í þau orð sem þeir telja sig hafa náð tökum á, og þjálfa betur hin sem út af standa. Einnig skrá nemendur sagnorð sem þeir hafa lært, og önnur orð sem þeir hafa bætt við orðaforðann í yfirferðinni. Orðabankann má nýta með lokamati áður en næsta hefti er tekið fyrir.

Fánaveifur

Með heftinu fylgja 40 Fánaveifur með hugtökum og ljósmyndum. Þessi hugtök eru þau sömu og í Orðabanka námsefnisins, og í fylgiskjalinu Orð og myndir 8. Tilvalið er að hengja veifurnar upp í stofunni meðan á yfirferð námsefnisins stendur.

Útgöngupassi

Kennari skrifar nöfn nemenda á miða og setur í krukku. Hann dregur miða í lok kennslustundar eða skóladags. Sá nemandi svarar spurningu úr námsefninu. Þegar nemandi svarar rétt má hann fara.

Hugmyndir:

  • Nefndu einn skyndibita.
  • Nefndu dæmi um álegg.
  • Nefndu einn drykk.
  • Við setjum matinn á … (disk).
  • Við setjum súpu í … (skál).
  • Við borðum mat með … (hníf og gaffli).
  • Við borðum súpu með … (skeið).
  • Nefndu eitt sérnafn.
  • Hvaða matur finnst þér góður?

Orðasúpa

Orðasúpan er hugsuð sem upprifjunarverkefni eftir yfirferð heftisins. Verkefnið er sett upp fyrir A3 stærð þar sem 40 þemaorð verkefnapakkans má finna falin upp, niður, afturábak, áfram og á ská í þrautinni. Á baksíðunni er sami orðalisti sýndur í stafrófsröð bæði í nefnifalli og þolfalli.

Comments are Closed