Kennarinn.is

Einn fyrir alla…

Marsmiðar fyrir forsíðu

Með Almanaksbókinni fylgir forsíða fyrir verkefnapakkana og hægt að velja um fjóra liti: gula, vínrauða, ljósgræna og ljósblá. Jafnframt fylgir svarthvítt eintak í pakkanum. Á forsíðu eru auðir reitir fyrir sérstaka miða sem nemendur klippa út og líma inn í þegar mánaðarpakka er lokið. Forsíðu má sækja HÉR.

Screen Shot 2016-02-28 at 11.47.07

Marsflögg í svarthvítu

Screen Shot 2016-02-28 at 11.25.18

Marsflögg í lit

Screen Shot 2016-02-28 at 11.50.38

Almanaksbókin – Janúarpakkinn

Fyrsti mánuður ársins er janúar nefndur í höfuð rómverska guðsins Janusar. Sá hafði tvö andlit og horfði bæði til fortíðar og framtíðar. Íslendingar nota gregoríska tímatalið sem kennt er við páfann Gregoríus þann þrettánda. Helstu merkisdagar janúarmánaðar eru 1. janúar, eða nýársdagur, 6. janúar sem oftast er nefndur þrettándinn og svo bóndadagur. Bóndadagur er fyrsti dagur þorra og ber alltaf upp á föstudag í 13. viku vetrar (19. – 25. janúar) en þá er veturinn hálfnaður. Margar skemmtilegar hefðir, gamlar og nýjar, eru til í tengslum við bóndadaginn.

Verkefnablöðin í þessum janúarpakka Almanaksbókarinnar eru fjögur. Veldu skjalið Almanaksbókin – Janúar PDF til að prenta efnið út í góðri prentupplausn.

1) Nemendur fylla inn í dagatalið, svara spurningum og skreyta það og lita eftir fyrirmælum.

2) Fylgst er með hitastigi janúarmánaðar og það skráð inn í mælinn. Nemendur læra hugtakið að þreyja þorrann og skrá veðurfar mánaðarins.

3) Merkisdagar janúarmánaðar eru skoðaðir og gott tækifæri til að ræða þá og vinna meira með nemendum. Skammstafanir vikudaganna eru skoðaðar og unnið aðeins meira með þá. Hér er fyrsti afmælisdagarenningurinn en nemendur skrá afmælisdaga vina og ættingja á renninginn. Tilvalið er að safna mánaðarrenningunum saman, klippa út og hefta í litla bók.

4) Orðasúpa með mánaðarheitunum. Nöfnin eru falin ýmist fram, aftur, upp, niður eða á ská.

jan

Almanaksbókin – Safnmappa

Forsíðan kemur í fjórum litum, gulum, vínrauðum, ljósgrænum og ljósbláum. Jafnframt fylgir svarthvítt eintak í pakkanum. Á forsíðu eru auðir reitir fyrir sérstaka miða sem nemendur klippa út og líma inn í þegar mánaðarpakka er lokið. Þá miða má finna við hvern mánuð á aðalsíðu Almanaksbókarinnar. Kjölmiðinn er 47 mm og hægt að mjókka að vild. Á baksíðu eru stjörnumerkin.

safnmappa

 

Myndaskrá

Stjörnumerkin eru fengin af vefnum www.freevector.com

Janúarflögg í svarthvítu

Klipptu þríhyrningslaga flöggin út og brjóttu eftir línunni. Settu band inn í brotið, föndurlím á milli og límdu niður.

januarbanner-01

Myndaskrá

Letrið er fengið á síðunni Dafont.com

Janúarmiðar fyrir forsíðu

Með Almanaksbókinni fylgir forsíða fyrir verkefnapakkana og hægt að velja um fjóra liti: gula, vínrauða, ljósgræna og ljósblá. Jafnframt fylgir svarthvítt eintak í pakkanum. Forsíðu má sækja HÉR.

Á forsíðu Almanaksbókarinnar eru reitir, einn fyrir hvern mánuð. Í hvert sinn sem nemandi lýkur við mánaðarpakka fær hann miða til að klippa út og líma yfir viðkomandi reit á forsíðunni. Á hverri örk eru 28 miðar, þá er hægt að nota á margvíslegan annan máta:

  • Útbúa samstæðuspil með öllum mánuðunum
  • Nemendur draga sig saman í hópa
  • Veiðimann
  • Umbun

Print