Bíó-leikhús Dómínó
Spilið er sett upp með dómínós munstri á bakhlið svo gott er að prenta beggja vegna á blöðin áður en það er plastað og klippt niður. Sjá spilareglur.
Þetta reddast – Orðasúpa 2
Orðasúpan er hugsuð sem upprifjunarverkefni eftir yfirferð 2. heftisins; Spil.
Verkefnið er sett upp fyrir A3 stærð þar sem Orðabankann, 40 þemaorð verkefnapakkans, má finna falin upp, niður, afturábak, áfram og á ská í þrautinni. Á baksíðunni er sami orðalisti sýndur í stafrófsröð bæði í nefnifalli og þolfalli.