Augað er stuttmyndasamkeppni fyrir 9. bekki grunnskólans unnið í samvinnu við Myndver grunnskólanna.
Skólahreysti er liðakeppni á milli grunnskóla landsins og samanstendur af fjögurra manna liði sem skipað er tveimur stelpum og tveimur strákum í 9. og 10. bekk. Þátttakendur keppa meðal annars í hraðabraut, upphýfingum, hreystigripi, dýfum og armbeygjum. Keppnin nýtur vaxandi vinsælda og við skóla hafa risið þrautabrautir ekki ósvipaðar þeirri sem keppt er í.
Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda er hugmyndasamkeppni meðal barna í 5. – 7. bekk. Nemendur senda hugmyndir inn í keppnina og dómnefnd velur hverjar komast áfram til frekari útfæringar í vinnusmiðjum. Þar aðstoða leiðbeinendur frá Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík börnin við að vinna að verkum sínum.
Skrekkur er hæfileikakeppni sem haldin er árlega meðal unglingadeilda í reykvískum grunnskólum. Senda má eitt atriði í keppnina þar sem átta skólar keppa á þremur undanúrslitakvöldum í Borgarleikhúsinu. Á fjórða kvöldi er keppt til úrslita. Skrekkur hóf göngu sína árið 1990 og verið haldinn óslitið síðan.
Lego forritunarkeppnin er nokkurs konar áskorun þar sem keppendur takast á við raunveruleg vandamál og leysa þau. Liðin hafa hvern sinn þjálfara og vinna eftir ákveðnu þema sem gefið er upp hverju sinni. Vinnan felst meðal annars í því að smíða vélmenni, skrá niður verkferla og kynna afraksturinn. Markmiðið er að skapa vettvang fyrir börn til að gera tilraunir og sigrast á hindrunum á sviði tækni og vísinda. Lego forritunarkeppnin er fyrir 9-16 ára nemendur og hvert lið hefur að skipa 6-10 börnum.
Söngkeppni Samfés er árleg keppni þar sem 13-16 ára gamlir nemendur keppa sín á milli. Samfés eru frjáls félagasamtök félagsmiðstöðva á Íslandi þar sem unglingar geta hist án áfengis og vímuefna. Samfés var stofnað 1985 og heldur einnig árlega keppni sem nefnist Stíll þar sem keppt er í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun og Rímnaflæði þar sem vakinn er áhugi ungmenna á rappi.
Stóra upplestrarkeppnin er fyrir 7. bekk grunnskóla og er í höndum skólaskrifstofu í hverju sveitarfélagi. Fylla þarf út skráningarblað, nemendur æfa sig í upplestri og framsögn og haldnar eru forkeppnir meðal árgangsins í hverjum skóla fyrir sig. Verkefnið er sett við hátíðlega athöfn 16. nóvember ár hvert á degi íslenskrar tungu. Markmiðið er að vekja áhuga á vönduðum framburði og upplestri og keppnin er gott tækifæri fyrir kennara til að leggja markvissa rækt við þessa þætti móðurmálsins.
Tóbakslaus bekkur er samkeppni á vegum Landlæknisembættisins þar sem nemendur í 7. 8., og 9. bekk geta tekið þátt. Nemendur skrifa undir sáttmála um að halda bekknum utan tóbaks allt skólaárið, vinna verkefni og senda inn. Skilyrði fyrir þátttöku er að allir í bekknum séu lausir við tóbaksnotkun. Bekkirnir senda inn lokaverkefni sem geta verið í formi veggspjalda, auglýsinga eða fræðsluefnis um tóbaksvarnir, og geta unnið fé til ráðstöfunar að eigin vild. Tvisvar yfir veturinn eru dregnir út nokkrir bekkir sem fá sendar litlar gjafir.