Kennarinn.is

Einn fyrir alla…

Safnasyrpa Kennarans

now browsing by tag

 
 

Safnarallý hreindýr

Skjalið er hluti af námsefninu Hreindýr sem unnið er í samvinnu við Minjasafn Austurlands. Það tengist verkefninu Safnarallý og myndirnar sýna muni úr hreindýrasýningu safnsins. Þeir sem ekki komast með nemendur að sjá sýninguna geta nýtt myndirnar að vild í skólastofunni.

Ljósmyndir af mununum eru teknar af Elsu Guðnýju Björgvinsdóttur:

  • H01 Loðin krúna
  • H02 Staðsetningartæki fyrir hreindýr
  • H03 Byssa
  • H04 Göngustafur úr hreindýrshorni
  • H05 Hreindýrshorn flækt í vír
  • H06 Fótur af hreindýri
  • H07 Eyrnamerki fyrir hreindýrskálfa
  • H08 Klyfberi
  • H09 Verkfæri úr hreindýrshorni
  • H10 Hreindýrshorn sem hefur dottið af hreindýri (efst: brennimerki, miðja: hófjárn, neðst: heynál).

Smelltu á bláa PDF linkinn hér fyrir ofan til að sækja skjalið í fullri prentupplausn.

Kennsluleiðbeiningar – hreindýr

Útbreiðsla hreindýra

Á verkefnablaðinu má sjá mynd af Austurlandi. Útbreiðslumörk hreindýra markast norður af Austurlandi frá Jökulsá á Fjöllum, norður fyrir Dettifoss og yfir í Þistilfjörð. Suður af Austurlandi liggja mörkin að Breiðamerkurlóni. Nánari upplýsingar um útbreiðslu hreindýra má finna í vöktunarskýrslum Náttúrustofu Austurlands, sjá mynd 1.

Aukaverkefni:

  • Teikna útbreiðslumörkin inn á Íslandskortið.

Hreindýrakönnun

Nemendur gera könnun meðal bekkjarfélaga hversu margir hafa séð eða komist í návígi við villt hreindýr í umhverfi sínu. Nemendur geta velt því fyrir sér hvort hreindýr í húsdýragarði falli undir skilgreininguna villt hreindýr.

Fyrstu hreindýrin

Hreindýr hafa verið flutt fjórum sinnum frá Noregi til Íslands. Nemendur finna staðina á landakorti og skrá inn á Íslandskortið.

Umræðupunktar:

  • Hvað er langt síðan fyrstu dýrin komu til Íslands?
  • Af hverju ætli Vestmannaeyjar hafi orðið fyrir valinu?

Fæða hreindýra 1

Nemendur finna orðin sem falin eru ýmist áfram, aftur á bak, upp, niður eða á ská í orðasúpunni.

Umræðupunktar:

  • Hvað af jurtaheitunum eru samsett orð?
  • Af hverju eru jurtaheiti skrifuð með litlum staf?
  • Hvaða jurtir eða gróður eru líka mannanöfn?

Fæða hreindýra 2

Nemendur prenta út myndir, klippa niður og líma í reitina eða teikna myndir í þá. Vefurinn Flóra Íslands hefur að geyma mjög góðar upplýsingar. Einnig má hugsa sér að tína jurtirnar, þurrka og líma í reitina.

Hugtakakortið

Aftast í verkefnaheftinu er fylgiskjalið Klippt og límt. Nemendur klippa miðana út og líma í reitina eftir því sem við á. Með flokkun er átt við hvernig hreindýr flokkast innan dýraríkisins.

Aukaverkefni:

  • Útbúa orðskýringar í stílabók.
  • Skrá orðin í stafrófsröð í stílabók.
  • Raða hverjum flokki fyrir sig í stafrófsröð áður en miðar eru límdir á verkefnablaðið.
  • Draga miða og útskýra hugtakið fyrir bekknum.

Hreindýrahornin

Nemendur setja orðin á réttan stað í eyðurnar. Ljósmyndir í heftinu eru teknar af Skarphéðni G. Þórissyni sérfræðingi hjá Náttúrustofu Austurlands. Á síðunni hans, hreindyr.com, er að finna mikið magn af fallegum árstíðatengdum myndum af villtum hreindýrum á Íslandi.

Hreindýrasagan

Hvað er að gerast á myndinni? Nemendur búa til frétt eða smásögu og skrifa á línurnar.

Aukaverkefni:

  • Lesa söguna upp fyrir samnemendur.
  • Hvaða fleiri hættum í umhverfinu getur hreindýrum staðið ógn af?

Hreindýraveiðar

Veiðar hafa verið stundaðar á hreindýrum um árabil og nánari upplýsingar um hreindýraleyfi, veiðikort, lög og reglur, uppskriftir og veiðiupplýsingar má finna á vef Umhverfisstofnunar.

Safnarallý

Á Minjasafni Austurlands er sýningin Hreindýrin á Austurlandi. Hægt er að nálgast PDF skjal hér með númeruðum munum fyrir safnarallýið:

  • H01 Loðin krúna
  • H02 Staðsetningartæki fyrir hreindýr
  • H03 Byssa
  • H04 Göngustafur úr hreindýrshorni
  • H05 Hreindýrshorn flækt í vír
  • H06 Fótur af hreindýri
  • H07 Eyrnamerki fyrir hreindýrskálfa
  • H08 Klyfberi
  • H09 Verkfæri úr hreindýrshorni
  • H10 Hreindýrshorn sem hefur dottið af hreindýri (efst: brennimerki, miðja: hófjárn, neðst: heynál).

Hreindýraprófið

Könnun fyrir nemendur í lok yfirferðar.

Umræðupunktar:

  • Hvað fannst þér áhugaverðast?
  • Hvað myndir þú vilja vita meira um hreindýr?
  • Þekkir þú einhver fræg hreindýr? Hver?
  • Hefur þú smakkað hreindýrakjöt?
  • Áttu hlut úr beini, horni eða skinni hreindýra?

Hægt er að sækja útprentanlegt PDF form af kennsluleiðbeiningum með því að smella á bláa linkinn efst á síðunni.  Í VINNSLU